Hungur blasir við milljónum afganskra barna Heimsljós 8. október 2021 08:50 UNICEF Yfirmenn UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, og Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) í Afganistan segja skelfingarástand ríkja í næringarmálum barna. Áætlað er að helmingur afganskra barna undir fimm ára aldri glími við bráðavannæringu á næstu vikum og mánuðum. Yfirmenn UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, og Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) í Afganistan segja skelfingarástand ríkja í næringarmálum barna og staða fæðuöryggis sé verulega slæm um allt land. Hervé Ludovic De Lys, yfirmaður UNICEF í Afganistan, og Mary-Ellen McGroarty, yfirmaður WFP í Afganistan, luku tveggja daga heimsókn sinni til Herat í gær með því að senda út sameiginlegt neyðarákall til heimsbyggðarinnar vegna stöðu mála þar í landi. „Fjórtán milljónir íbúa Afganistan standa nú frammi fyrir alvarlegu fæðuóöryggi og vita ekki hvaðan næsta máltíð kemur. Áætlað er að 3,2 milljónir barna undir fimm ára aldri glími við bráðavannæringu á þessu ári. Að minnsta kosti ein milljón þessara barna verður í bráðri lífshættu án nauðsynlegrar meðhöndlunar,“ segir í frétt frá UNICEF. Selja allt sem þau eiga fyrir mat De Lys og McGroarty ræddu í heimsókn sinni meðal annars við Jahan Bibi sem á 18 mánaða gamla dóttur sem nú liggur inni á sjúkrahúsinu í Herat að fá meðferð við alvarlegri bráðavannæringu. Hún kom með dóttur sína á sjúkrahúsið því hún gat ekki lengur haft hana á brjósti. „Við eigum engan mat heima. Við erum að selja allt sem við eigum til að kaupa mat, en samt á ég ekkert að borða. Ég er veikburða og framleiði ekki neina mjólk fyrir barnið mitt,“ segir Jahan Bibi. Veturinn nálgast nú óðfluga í Afganistan en hann getur orðið verulega kaldur og harður á þessum slóðum. Hjálparstofnanir eru því í kapphlaupi við tímann til að aðstoða afganskar fjölskyldur. UNICEF „Fjölskyldum sem eiga ekki til hnífs og skeiðar fjölgar hratt og heilsu barna og mæðra hrakar,“ segir De Lys. „Börn eru að veikjast og fjölskyldur geta ekki sótt nauðsynlega meðferð. Faraldur mislinga og niðurgangs vegna óhreins vatns mun aðeins auka á þessa neyð.“ Samkvæmt könnun WFP, Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna, er matarskortur á 95 prósent heimila í Afganistan, fullorðnir borða minna og sleppa máltíðum svo börn þeirra geti fengið meira. „Við höfum gríðarmiklar áhyggjur af þessum fórnum sem fjölskyldur neyðast til að færa,“ segir McGroarty hjá WFP. „Ef við gerum ekki meira núna mun vannæring aðeins verða stærra vandamál og alvarlegra. Alþjóðasamfélagið verður að láta af hendi fjármagnið sem okkur var lofað fyrir nokkrum vikum. Ef ekki, gætu áhrifin orðið óafturkallanleg.“ Starf UNICEF og WFP líflína fyrir hungraðar fjölskyldur Þessar tvær stofnanir Sameinuðu þjóðanna eru nú að bæta við hundrað svona færanlegum heilbrigðis- og næringarteymum í landinu en þau voru fyrir 168 talsins. Teymin eru líflína fyrir mæður og börn á svæðum sem erfitt er að ná til. Með teymunum kemur grunnþjónustan til þeirra. Frá ársbyrjun 2021 hefur WFP veitt 8,7 milljónum manna matar- og næringaraðstoð, þar af 400 þúsund verðandi mæðrum og konum með barn á brjósti og 790 þúsund börnum undir fimm ára aldri. Hægt var að veita fjórum milljónum manna aðstoð í september síðastliðnum. Það sem af er þessu ári höfðu 210 þúsund börn með alvarlega bráðavannæringu fengið meðferð í gegnum þjónustu á vegum UNICEF. Næringarríkt jarðhnetumauk fyrir 42 þúsund börn og næringarmjólk fyrir 5.200 börn hefur einnig borist síðustu átta vikur í gegnum samstarfsaðila UNICEF. En hvort tveggja gerir kraftaverk í meðhöndlun vannæringar hjá börnum. UNICEF á Íslandi hefur staðið fyrir neyðarsöfnun fyrir börnin í Afganistan undanfarnar vikur. Þú getur lagt þitt af mörkum hér. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Afganistan Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Innlent Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi Innlent „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Innlent Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Innlent Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Erlent Boða verkföll í tíu leikskólum í desember Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Afganistan Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Innlent Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi Innlent „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Innlent Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Innlent Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Erlent Boða verkföll í tíu leikskólum í desember Innlent