Umfjöllun, mörk og myndir: Real Madrid - Breiðablik 5-0 | Blikar áttu aldrei möguleika í hitanum í Madríd Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 13. október 2021 21:25 Caroline Møller fagnar einu af þremur mörkum sínum í kvöld. Denis Doyle/Getty Images Þrenna dönsku landsliðskonunnar Caroline Møller Hansen í fyrri hálfleik gerði út um leik Real Madríd og Breiðabliks í Meistaradeild Evrópu. Ekki hjálpaði mark strax í upphafi síðari hálfleiks, lokatölur 5-0 heimakonum í vil. Eftir frábæra frammistöðu gegn París Saint-Germain í síðustu viku var mikil bjartsýni fyrir leik Real Madríd og Breiðabliks ytra í kvöld. Sú bjartsýni var ef til vill byggð á fölskum forsendum en Blikar áttu því miður í raun aldrei möguleika í spænsku höfuðborginni. Fyrsta markið kom strax á 6. mínútu leiksins. Caroline Møller átti þá frábært hlaup af miðjunni, í gegnum miðja vörn Blika. Kenti Robles fann Møller með góðri sendingu, sú danska tók við knettinum og þrumaði honum í netið. Kenti Robles Caroline Møller https://t.co/CiCK3bzGKe https://t.co/gcWvSS9v1b https://t.co/StnheMnY8y pic.twitter.com/4UcuBJHf8O— DAZN Football (@DAZNFootball) October 13, 2021 Staðan var svo orðin 2-0 tæpum stundarfjórðungi síðar er Møller skoraði sitt annað mark. Að þessu sinni fylgdi hún eftir skoti Lorenu Navarro Dominguez sem var bjargað á línu. Møller fullkomnaði svo þrennu sína með góðu skoti úr teignum eftir fyrirgjöf Robles frá hægri. HAT-TRICK FOR MØLLER https://t.co/CiCK3bzGKe https://t.co/q8BFhjb2qS https://t.co/StnheMnY8y pic.twitter.com/ueNxMGt9zc— DAZN Football (@DAZNFootball) October 13, 2021 Markið kom upp úr frábæru þríhyrningsspili heimakvenna á hægri vængnum. Staðan orðin 3-0 og þannig var hún í hálfleik. Síðari hálfleikur byrjaði líkt og sá fyrri en Olga Garcia Carmona kom Real í 4-0 eftir að hreinsun Ástu Eir Árnadóttur fór í Møller og sú danska sendi Carmona í kjölfarið eina í gegnum vörn Blika. Ásta Eir og Caroline Møller í leik kvöldsins.Denis Doyle/Getty Images Olga on the scoresheet with her first ever @UWCL goal https://t.co/CiCK3bzGKe https://t.co/q8BFhjb2qS https://t.co/StnheMnY8y pic.twitter.com/GDZUpcpwYp— DAZN Football (@DAZNFootball) October 13, 2021 Þrátt fyrir að vera 4-0 yfir var varnarlína Blika mjög hátt upp á vellinum og mikið svæði milli línanna. Það nýtti Lorena Navarro sér en hún skoraði fimmta mark Real Madríd þegar mínúta lifði leiks, lokatölur 5-0 í spænsku höfuðborginni. Lorena Navarro skoraði fimmta mark Real Madríd í kvöld.Denis Doyle/Getty Images Karitas Tómasdóttir í baráttunni við Nahikari García í kvöld.Denis Doyle/Getty Images Breiðablik Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti