Erlent

Heimila bólu­setningu ungra barna í Banda­ríkjunum

Árni Sæberg skrifar
Bóluefni Pfizer er mest notaða bóluefnið hér á landi.
Bóluefni Pfizer er mest notaða bóluefnið hér á landi. Getty/Artur Widak

Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur veitt lyfjafyrirtækinu Pfizer blessun sína til að hefja bólusetningu barna eldri en fimm ára gegn Covid-19 í neyðartilvikum. Allt að 28 milljónir barna gætu fengið bóluefni strax í næstu viku.

Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna hefur þó ekki enn ákveðið hvaða börn megi fá bóluefni en ákvörðunar er að vænta á þriðjudaginn. Frá upphafi heimsfaraldurs Covid-19 hafa ríflega 8.300 börn á aldrinum fimm til ellefu ára þurft að leggjast inn á spítala vegna sjúkdómsins í Bandaríkjunum.

Þar af hefur þriðjungur þurft á bráðalækningum að halda og 146 látist. Í frétt AP um málið segir að sjötíu prósent barna sem þurft hafa á læknisaðstoð að halda glími við undirliggjandi heilsufarsvanda á borð við asthma og offitu. 

„Hugsunarhátturinn hér er að vernda börnin svo þau geti lifað eðlilegu lífi á ný. Gríðarleg áhrif faraldursins hafa ekki bara verið líkamleg veikindi heldur líka andleg og á félagslegan þroska barna,“ segir Peter Marks, yfirmaður bóluefnamála hjá matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna.

Börn fái vægari aukaverkanir og minni skammt

Vísindamenn eftirlitsins telja að ávinningur af notkun bóluefnisins vegi þyngra en hugsanlegar aukaverkanir hjá börnum. Þá segir að nýjar eða óvæntar aukaverkanir hafi ekki komið upp, sem gæfu tilefni til að hafa áhyggjur af bólusetningunni. Algengustu aukaverkanirnar hafi verið eymsli í handleggjum, hiti eða beinverkir.

Í rannsóknum Pfizer var börnum veittur minni skammtur bóluefnis en þeim sem eldri eru. Börn munu einungis fá þriðjung þess skammts sem aðrir fá. Pfizer mun afhenda barnaskammtinn í öðruvísi umbúðum en þann venjulega til þess að koma í veg fyrir ruglning.

Ákvörðunin verði fordæmisgefandi

Flest ríki heims hafa hingað til ekki hafið bólusetningar barna undir tólf ára aldri, þar á meðal Ísland.

Hins vegar hafa heilbrigðisyfirvöld á Kúbu byrjað að bólusetja börn allt niður í tveggja ára gömul með bóluefni sem þróað var í landinu. Þá hafa kínversk yfirvöld veitt tveimur þarlendum bóluefnaframleiðendum leyfi til bólusetningar þriggja ára barna og eldri.

Talið er að ákvörðun Bandaríkjanna muni hafa áhrif á önnur lönd sem einnig notu bóluefni Pfizer.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×