Heimsþing kvenleiðtoga hefst á morgun í Hörpu Rakel Sveinsdóttir skrifar 8. nóvember 2021 16:43 Frá Heimsþingi kvenleiðtoga árið 2020. Í ár mun Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, hljóta heiðursverðlaun fyrir störf sín í þágu jafnréttis en eins verða kynntar nýjar niðurstöður rannsókna sem mælir afstöðu almennings um allan heim til karla og kvenna sem leiðtoga Á morgun, þriðjudag, hefst heimsþing kvenleiðtoga, Reykjavík Global Forum – Women Leaders (WPL) í fjórða sinn en þar munu um 600 kvenleiðtogar úr stjórnmálum, viðskiptum, fjölmiðlum og vísindum taka þátt, þar af 200 í Hörpu en 400 með rafrænum hætti.
Yfirskrift Heimsþingsins að þessu sinni er „Power together for progress“ en meðal þátttakenda í ár eru: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Amina J. Mohammed aðstoðarframkvæmdastjóri SÞ, Pedro Sánchez forsætisráðherra Spánar, Michelle Bachelet mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna og fyrrverandi forseti Chile, Ulrik Vestergaard Knudsen aðstoðarframkvæmdastjóri OECD, Christy Tanner forseti Tanner Media, Jacqueline Fuller forseti Google, Marjut Falkstedt framkvæmdastjóri Evrópska Fjárfestingarbankans, Amy Weaver fjármálastjóri Salesforc og Sima Sami Bahous framkvæmdastjóri UN Women. Á Heimsþinginu eru alltaf veitt sérstakar jafnréttisviðurkenningar og í ár mun Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, hljóta heiðursverðlaun fyrir störf sín í þágu jafnréttis. Þá verða kynntar niðurstöður Reykjavik Index for Leadership 2021 í samstarfi við rannsóknarfyrirtækið Kantar sem mælir afstöðu almennings um allan heim til karla og kvenna sem leiðtoga. Viðhorf Íslendinga er nú mælt í fyrsta sinn og sá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands um framkvæmd könnunarinnar hér á landi. Ennfremur verður kynntur uppfærður Reykjavik Women World Atlas 2020 í samstarfi við McKinsey Institute þar sem hlutur kvenna sem leiðtoga er kortlagður eftir löndum. Að venju eru leiðtogar víðs vegar úr heiminum meðal fyrirlesara á Heimsþingi kvenleiðtoga en í ár eru þátttakendur um 600 talsins. Heimsþingið er nú haldið í fjórða sinn og fer fram bæði í Hörpu og með rafrænum hætti. Hanna Birna Kristjánsdóttir sérlegur ráðgjafi á aðalskrifstofu UN Women er stjórnarformaður Heimsþings kvenleiðtoga: „Heimsþing kvenleiðtoga hefur vaxið mikið á þeim árum sem liðin eru frá því fyrsti viðburðurinn var haldinn hér á landi. Sá öflugi og stóri hópur kvenleiðtoga sem tekur þátt í viðburðinum reglulega er þó ekki það eina sem skiptir máli, heldur mælum við árangurinn miklu frekar í því hvernig þær lausnir og aðgerðir sem hér eru kynntar auka líkur á framförum í jafnréttismálum. Það hefur gengið afar vel og það skiptir mestu.“ Heimsþingið er haldið í samstarfi alþjóðlegu þingkvennasamtakanna Women Political Leaders, ríkisstjórnar Íslands og Alþingis, auk fjölda erlendra og innlendra samstarfsaðila. Þá er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, verndari Heimsþingsins líkt og verið hefur síðustu árin. „Kvenleiðtogar frá öllum heimshornum fagna því að fá tækifæri til að læra af Íslandi í gegnum þátttöku í Heimsþingi kvenleiðtoga. Við erum mjög stolt af samstarfi okkar við ríkisstjórn Íslands, Alþingi og fleiri íslenska aðila sem staðfesta ár hvert hvers vegna Íslendingar geta verið stolt af stöðu sinni þegar kemur að jafnrétti. Við erum hér til að læra og ræða hvernig best má nýta reynsluna héðan öðrum þjóðum til hagsbóta,“ er haft eftir Silvönu Koch-Mehrin forseta og stofnanda WPL. Í tilefni Heimsþingsins verður Atvinnulífið með ýmiss málefni kvenna í atvinnulífinu til umfjöllunar í þessari viku.
Harpa Jafnréttismál Heimsþing kvenleiðtoga Tengdar fréttir UAK og jafnrétti: Óhefðbundið kvennamót í fótbolta hefst á mánudag Úrslit Global Goals World Cup (GGWCUP) verða haldin í fyrsta sinn á Íslandi dagana 8.-10. nóvember. Munu gestir víðsvegar að úr heiminum ferðast til Íslands til að taka þátt í mótinu. Félag ungra athafnakvenna, UAK, eru gestgjafar mótsins. 4. nóvember 2021 18:42 Launamunur mestur í karllægum starfsstéttum „Fljótt á litið virðist þetta mjög tengt hve störfin eru kynbundin, í skrifstofuhópnum eru konur í miklum meirihluta og þar er jöfnuðurinn meiri en því hærra sem hlutfall karla er í starfsstéttinni þá eykst ójöfnuðurinn meiri,“ segir Víðir Ragnarsson, forstöðumaður ráðgjafar hjá PayAnalytics um niðurstöður nýrrar rannsóknar á launamunum kynjanna. 13. október 2021 07:02 Stjórnarkonur ósáttar: Karlaklíkur útiloka konur í forstjórastólinn Stjórnarkonur í skráðum félögum á Íslandi telja ráðningaferli í forstjórastól oft útilokandi fyrir konur. Þær kalla stjórnir í heild sinni til ábyrgðar. Þá telja margar ráðningaferlin oft meingölluð. Það eigi einnig við um ráðningar þar sem leitað er til fagaðila. Þetta og fleira kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem birtar eru í dag og meira en helmingur stjórnarkvenna í skráðum félögum á Íslandi tók þátt í. 22. júní 2021 07:01 Konur sem berjast fyrir jafnrétti verða oft fyrir aðkasti „Ég vona að lagasetningin sé innlegg í þá viðhorfbreytingu sem byggir á að konur geti tekið þátt í kynferðislegri háttsemi án þess að eiga á hætti að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi. Það er ekki bara áfall og kostnaður fyrir einstaklinga sem fyrir slíku verða, heldur samfélagið og þannig atvinnulífið,” segir María Bjarnadóttir lögfræðingur, en hún skrifaði greiningagerðina fyrir íslensk stjórnvöld sem ný lög um stafrænt ofbeldi byggir á. 25. febrúar 2021 07:01 Mest lesið Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Neytendur Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Neytendur Áhersla á öryggi viðskiptavina Samstarf Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Viðskipti innlent Ómar fær fyrir ferðina Neytendur Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því Atvinnulíf Betra en ekki að viðurkenna mistökin Atvinnulíf Verðskrá Lufthansa hækkar vegna nýs umhverfisgjalds Neytendur Sex fyrirtæki sektuð vegna nikotínauglýsinga Neytendur Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Viðskipti innlent Fleiri fréttir Betra en ekki að viðurkenna mistökin Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því Sjálfbærniskólinn opnar: Reglugerðin mun líka hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki Hafa þróað kerfi til að auka á gagnsæi viðskipta með kolefniseiningar „Hef ítrekað verið ásakaður af eiginkonunni að vera morgunfúll“ Óöryggi, feimni og jafnvel einmanaleiki í nýju sumarvinnunni Hámarkstími fullorðinna í símanum og góð ráð „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Níu manns sagt upp hjá Veitum Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Að sækja um starf eftir uppsögn Hefur óeðlilega þörf fyrir að strauja allt frá skyrtum í barnasamfellur Að standa upp til að gera eitthvað og muna síðan ekkert hvað það var „Orðið var við aukna umræðu um að vinnan eigi ekki að valda álagi“ Ekkert einkamál: Áhrif vinnustaða á geðheilsu jafn stór og makans „Þú varst aumingi ef þú fórst á hausinn en glæpamaður ef þú græddir“ „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Sjá meira
UAK og jafnrétti: Óhefðbundið kvennamót í fótbolta hefst á mánudag Úrslit Global Goals World Cup (GGWCUP) verða haldin í fyrsta sinn á Íslandi dagana 8.-10. nóvember. Munu gestir víðsvegar að úr heiminum ferðast til Íslands til að taka þátt í mótinu. Félag ungra athafnakvenna, UAK, eru gestgjafar mótsins. 4. nóvember 2021 18:42
Launamunur mestur í karllægum starfsstéttum „Fljótt á litið virðist þetta mjög tengt hve störfin eru kynbundin, í skrifstofuhópnum eru konur í miklum meirihluta og þar er jöfnuðurinn meiri en því hærra sem hlutfall karla er í starfsstéttinni þá eykst ójöfnuðurinn meiri,“ segir Víðir Ragnarsson, forstöðumaður ráðgjafar hjá PayAnalytics um niðurstöður nýrrar rannsóknar á launamunum kynjanna. 13. október 2021 07:02
Stjórnarkonur ósáttar: Karlaklíkur útiloka konur í forstjórastólinn Stjórnarkonur í skráðum félögum á Íslandi telja ráðningaferli í forstjórastól oft útilokandi fyrir konur. Þær kalla stjórnir í heild sinni til ábyrgðar. Þá telja margar ráðningaferlin oft meingölluð. Það eigi einnig við um ráðningar þar sem leitað er til fagaðila. Þetta og fleira kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem birtar eru í dag og meira en helmingur stjórnarkvenna í skráðum félögum á Íslandi tók þátt í. 22. júní 2021 07:01
Konur sem berjast fyrir jafnrétti verða oft fyrir aðkasti „Ég vona að lagasetningin sé innlegg í þá viðhorfbreytingu sem byggir á að konur geti tekið þátt í kynferðislegri háttsemi án þess að eiga á hætti að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi. Það er ekki bara áfall og kostnaður fyrir einstaklinga sem fyrir slíku verða, heldur samfélagið og þannig atvinnulífið,” segir María Bjarnadóttir lögfræðingur, en hún skrifaði greiningagerðina fyrir íslensk stjórnvöld sem ný lög um stafrænt ofbeldi byggir á. 25. febrúar 2021 07:01