Enski boltinn

Guðni meiddist eftir átta mínútur í leik með stjörnuliði Bolton

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stjörnulið Bolton Wanderers sem spilaði gegn núverandi liði Bolton í góðgerðarleik í gær. Guðni er þriðji frá vinstri í aftari röð.
Stjörnulið Bolton Wanderers sem spilaði gegn núverandi liði Bolton í góðgerðarleik í gær. Guðni er þriðji frá vinstri í aftari röð. bolton

Guðni Bergsson, fyrrverandi formaður KSÍ, lék með stjörnuliði Bolton Wanderers í góðgerðarleik í gær. Gamanið var hins vegar stutt hjá Guðna í leiknum.

Stjörnulið Bolton undir stjórn Sams Allardyce mætti núverandi liði Bolton í góðgerðarleik á heimavelli liðsins. Tilgangurinn var að safna fé fyrir læknismeðferð móður Gethin Jones, leikmanns Bolton, en hún glímir við MND.

Guðni var í byrjunarliðinu í stjörnuliði Bolton ásamt köppum eins og Jay Jay Okocha, Kevin Davies, Jussi Jääskeläinen og Ivan Campo.

Guðni þurfti hins vegar að fara af velli eftir aðeins átta mínútur vegna meiðsla. Alan Stubbs tók stöðu hans.

Eftir leikinn tjáði Guðni stuðningsmönnum Bolton að hann væri aumur í skrokknum en annars í góðu lagi. Þá sagði hann að dagurinn hafi verið stórkostlegur.

Guðni er í gríðarlega miklum metum hjá Bolton og er talinn meðal bestu leikmanna í sögu félagsins. Hann lék með Bolton á árunum 1995-2003 og var lengi fyrirliði liðsins.

Stjörnulið Bolton tapaði leiknum, 7-4, en allir gengu sáttir af velli. Eins og svo oft þegar hann spilaði með Bolton stal Okocha senunni. Þeir Stóri Sam tóku til að mynda sömu frægu dansspor og þeir tóku á blómatíma Bolton.

Bolton leikur núna í ensku C-deildinni. Liðið er í 11. sæti hennar með 22 stig eftir sautján umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×