Tottenham kom til baka og vann sinn fyrsta sigur undir stjórn Conte Arnar Geir Halldórsson skrifar 21. nóvember 2021 18:29 Sáttur. vísir/Getty Antonio Conte náði í sinn fyrsta sigur sem knattspyrnustjóri Tottenham þegar lið hans lagði Leeds að velli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Það blés þó ekki byrlega fyrir Tottenham því í uppbótartíma fyrri hálfleiks skoraði Daniel James fyrir gestina og tryggði þeim forystu í leikhléið. Tottenham liðið mætti ákveðið til leiks í síðari hálfleik og það skilaði marki á 58.mínútu þegar Pierre Emil Hojbjerg kom boltanum í netið eftir sendingu Lucas Moura. Sigurmarkið kom svo úr óvæntri átt þar sem Sergio Reguilon var fyrstur að átta sig eftir misheppnaða aukaspyrnu Eric Dier og kom spænski bakvörðurinn boltanum í netið. Reyndist það sigurmark leiksins þar sem Tottenham vann 2-1 sigur. Enski boltinn