Á móti straumnum verðlaunuð: „Boðskapur sem á erindi við mjög marga“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 28. nóvember 2021 18:53 Óskar Páll talar um myndina í London. Óskar Páll „Þetta er ótrúlega skemmtilegt og alltaf smá óvænt,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Óskar Páll Sveinsson í samtali við Vísi.
Íslenska heimildarmyndin hans Á móti straumnum hlaut nú rétt í þessu verðlaunin Best Nordic Film á Nordic Adventure Film Festival, NAFF. „Þetta er náttúrulega fyrst og fremst heiður og viðurkenning, að maður sé að gera eitthvað rétt,“ segir Óskar Páll stoltur. „Ég er sérstaklega þakklátur Veigu fyrir að hleypa mér svona nálægt sér með myndavélarnar, einnig Kristínu Ólafsdóttur og Pétri Einarssyni fyrir að taka að sér framleiðsluna og svo öllum þeim stóra hóp sem kom að gerð myndarinnar,“ segir Óskar Páll um verðlaunin. „Þau eiga öll heiður skilið.“ Óskar Páll að mynda Veigu. Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson náði þessari mynd á tökustað.RAX Innri barátta um líf eða dauða Á móti straumnum, sem erlendis er kynnt sem Against the current, er táknræn og áhrifarík mynd um transkonuna Veigu Grétarsdóttur Myndin segir frá lífshlaupi Veigu, kynleiðréttingu og ótrúlegu ferðalagi hennar á kajak í kringum Ísland í þrjá mánuði. Á móti straumnum var sýnd á miðvikudag á hátíðinni og aukasýning var haldin fyrr í dag. Í þessari vönduðu átakasögu er kynleiðréttingarferli Veigu og ferðalagi hennar í kringum Ísland fléttað saman á myndrænan hátt.Óskar Páll Veiga var fyrsta manneskjan í heiminum til að róa á kajak 2.100 kílómetra í kringum um landið rangsælis, á móti straumnum. Samhliða tekst hún á við sjálfa sig í kynleiðréttingarferlinu og gefur myndin innsýn í innri baráttu Veigu um líf eða dauða hvort sem er í lífinu sjálfu eða ein úti á kajak. „Það er gaman hvað myndin er að fara víða því þetta er boðskapur sem á erindi við mjög marga,“ segir Óskar Páll. „Það hefur komið í ljós eftir að við byrjuðum að sýna myndina. Við erum búin að fá viðbrögð frá alls konar fólki, til dæmis mjög mörgum sem tengjast transfólki. Auðvitað líka frá transfólki líka.“ „Það er ótrúlega góður hópur að góðum konum sem tók þátt í þessu,“ segir Óskar Páll um verkefnið. Óskari Páli þótti til dæmis einstaklega vænt um það að fá að hitta mann á dögunum sem myndin hreyfði mikið við. „Það var afi sem á trans afabarn. Hann sagði að eftir að hann horfði á myndina þá allt í einu skildi hann þetta svo miklu betur. Hann sagði mér, „Þetta á eftir að breyta því hvernig ég sé þessi mál algjörlega, ég sé barnið með allt öðrum augum eftir að ég sá myndina.“ Það er voðalega gaman að heyra svona sögur, þá er eitthvað gott að koma út úr þessu.“ Óskar Páll og Veiga svara spurningum fyrir sýningu á myndinni á kvikmyndahátíð í London.Óskar Páll „Gimsteinn“ um hugrakka konu Aðstandendur myndarinnar gátu ekki verið viðstaddir verðlaunaafhendinguna í Kaupmannahöfn í kvöld. „Við gátum ekki farið vegna Covid og fleiri ástæðna,“ útskýrir Óskar Páll. Hann sendi inn myndbandsupptöku af þakkarræðu sem spiluð var þegar myndin vann verðlaunin. NAFF fór fram í Kaupmannahöfn og Árósum og lýkur í kvöld. Heimildarmyndin var frumsýnd hér á landi í Bíó Paradís á RIFF hátíðinni árið 2020 og var einnig sýnd á Stöð 2. Enn er hægt að leigja myndina og horfa á hana í gegnum Stöð 2+ efnisveituna. Í júní á þessu ári fór hún svo í sýningar í kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum. „Það er mjög sjaldgæft að heimildarmyndir fari í svona dreifingu eins og þessi mynd fékk í úti í Bandaríkjunum. Það var því alveg gríðarlegur heiður og margt gott sem kom út úr því. Það var líka gaman að sjá dómana sem komu frá Bandaríkjunum, þeir komu á óvart.“ Í Los Angeles Times var myndinni lýst sem „gimsteini“ og gullfallegri á svo margan hátt. „Myndirnar á Íslandi eru hrífandi,“ segir meðal annars í dómnum. Veiga er sögð einstök og hugrökk og Óskari er hrósað fyrir hvernig hann heldur stjórn á sögunni í gegnum myndina. Ólafur Páll og Pétur á TIFF hátíðinni.Óskar Páll Myndin hefur nú þegar skapað honum mörg ný tækifæri. „Það sem hefur líka komið í ljós er að maður er að fá tilboð frá erlendum kvikmyndagerðarmönnum og fólki í bransanum um verkefni.“ „Það er ótrúlega góður hópur að góðum konum sem tók þátt í þessu,“ segir Óskar Páll um verkefnið.Óskar Páll Mikilvægt að hafa umræðuna opna Myndin var framleidd af Klikk Productions og Pétri Einarssyni. Klikk Productions var stofnað árið 2002 af Kristínu Ólafsdóttur leikstjóra og framleiðanda og hefur það að markmiði að framleiða myndir tengdar mannúðarmálum, einkum sem snúa að réttindum barna og kvenna. Óskar Páll vann í nokkur ár að myndinni og segir viðfangsefnið gríðarlega mikilvægt. „Eins og við vitum þá er fólk að þjást svo víða, sem er í þessari stöðu. Unga fólkið og unglingarnir líka. Ég veit að það var sjálfsvíg fyrir nokkrum vikum síðan, trans unglingur.“ Myndin vann á hátíð sem verðlaunar það besta í útivistar- og jaðaríþróttamyndum. Óskar Páll segir því mikilvægt að hafa þessa umræðu opna. „Veiga, verandi svona hrein og bein eins og hún er, hún nær svo auðveldlega til fólks. Hún nær fólki með sér og það er mjög greinilegt hvað umræðan er jákvæð í kringum hana. Það er algjörlega frábært.“ Hann segir það líka greinilegt að þetta er að skila einhverju, miðað við þann fjölda skilaboða sem þau hafa fengið síðan myndin fór í sýningu hér á landi og erlendis. „Það er gaman að sjá hvað þessi mynd er að gera.“ Sýnishorn úr myndinni Á móti straumnum má sjá hér fyrir neðan en hún er einnig aðgengileg á Stöð 2+ efnisveitunni.
Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Hinsegin Tengdar fréttir „Sjaldgæft að heimildarmyndir komist á hvíta tjaldið vestan hafs“ Íslenska heimildamyndin Á móti straumnum/Against the Current eftir Óskar Pál Sveinsson kvikmyndagerðamann verður frumsýnd í dag í kvikmyndahúsum í New York og Los Angeles í Bandaríkjunum. 25. júní 2021 14:31 Ísland í brennidepli á RIFF RIFF er skurðpunktur íslenskrar og erlendrar kvikmyndalistar. Í flokknum Ísland í brennidepli er að finna kvikmyndir sem Íslendingar hafa komið að svo eftir er tekið. 15. september 2020 14:31 Mest lesið Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta Lífið „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Lífið „Ég held ég sé með niðurgang“ Lífið Vill kynlíf en ekki samband Lífið „Fróunarklefinn“, versti leikstjóri heims og Teslu-skömmin Lífið Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Lífið Bjarni Ben lét sig ekki vanta á Fjallabak Menning Biður drottninguna að blessa heimilið Tíska og hönnun Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Menning Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Fróunarklefinn“, versti leikstjóri heims og Teslu-skömmin Vill kynlíf en ekki samband „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta „Ég held ég sé með niðurgang“ Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Steldu stílnum af heimili Svönu Lovísu Hollt veisluhlaðborð sem er lygilega bragðgott og girnilegt Stjörnulífið: Eddan, rauðar blúndur og afmæli í París VÆB-bræður fyrstir á svið í Eurovision Vörur sem flugfreyjur kaupa í Bandaríkjunum Stefán Einar og Sara Lind selja parhúsið Richard Chamberlain er látinn Úr svefnherbergispoppi í drum-n-bass: „Fólkið var ógeðslega mikið að fíla þetta“ „Þarna brotnaði ég bara niður og grét og grét“ Krakkatían: Andrés Önd, Bubbi Morthens og ballett Adolescence: Börn ekki lengur örugg ein inni í herbergi Halda tíu tíma maraþontónleika Löng fangelsisvist blasir við popparanum Áhrifavaldar og þingmenn ræddu kærleikann „Þetta má ekki vera feimnismál“ „Ástarsorg er best í heimi“ Fréttatía vikunnar: Eddan, rektorskjör og mannanafnanefnd Fólk spyrji um veganisma af forvitni frekar en til að vera með leiðindi Fimm tíma morgunrútínan sem allir eru að tala um Eiginkona rafrettukóngs keypti eitt dýrasta einbýlishús Garðabæjar Dóttir Fox og Kelly komin í heiminn „Þetta var ekki alið upp í mér“ Hefur miklar áhyggjur af auknum vopnaburði barna Sjá meira
„Sjaldgæft að heimildarmyndir komist á hvíta tjaldið vestan hafs“ Íslenska heimildamyndin Á móti straumnum/Against the Current eftir Óskar Pál Sveinsson kvikmyndagerðamann verður frumsýnd í dag í kvikmyndahúsum í New York og Los Angeles í Bandaríkjunum. 25. júní 2021 14:31
Ísland í brennidepli á RIFF RIFF er skurðpunktur íslenskrar og erlendrar kvikmyndalistar. Í flokknum Ísland í brennidepli er að finna kvikmyndir sem Íslendingar hafa komið að svo eftir er tekið. 15. september 2020 14:31