Eitt fyrsta verk Svandísar að liðka fyrir veiðum á loðnu Kristján Már Unnarsson skrifar 30. nóvember 2021 18:19 Svandís Svavarsdóttir tók við sjávarútvegsmálunum af Kristjáni Þór Júlíussyni í gærmorgun. Vilhelm Gunnarsson Svandís Svavarsdóttir, nýr sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði í dag breytingu á reglugerð sem heimilar veiðar á loðnu með flotvörpu tímabundið á afmörkuðum svæðum úti fyrir Norðurlandi. Líklegt má telja að þessi ákvörðun setji loðnuvertíðina af stað en loðnan hefur verið illveiðanleg með hefðbundinni loðnunót sökum þess hversu djúpt hún liggur í sjónum.
Þessi ákvörðun Svandísar var eitt fyrsta verk hennar í nýju ráðuneyti, að sögn Ástu Sigrúnar Magnúsdóttur, upplýsingafulltrúa ráðuneytisins. Samkvæmt bráðabirgðaákvæði ber skipstjórum sem stunda veiðar á svæðunum að tilkynna það Fiskistofu eigi síðar en einum virkum degi fyrir upphaf veiða og að taka um borð eftirlitsmann, samkvæmt nánari tilmælum frá Fiskistofu. Frá loðnuveiðum í Faxaflóa á síðustu vertíð. Skipin sem sjást eru Sigurður VE, Víkingur AK og grænlenska skipið Polar Amaroq.KMU Þrjár vikur eru frá því fyrstu veiðiskipin héldu til loðnuveiða. Skipstjórar hafa séð talsvert af loðnu en hvorki hefur gengið né rekið að veiða hana. Ýmist hefur bræla hamlað veiðum en auk þess hefur loðnan verið á of miklu dýpi til að loðnunætur skipanna nái henni. Skipstjórar hafa því verið að þrýsta á að fá nota troll, veiðarfæri sem nær dýpra, á umræddum svæðum úti fyrir Norðurlandi. Loðnuveiðar með trolli hafa hins vegar verið leyfðar austan við Langanes en ekki vestan við lengdarbaug 14'30, þar til nú, með reglugerðarbreytingu Svandísar. Hún heimilar trollveiðar allt vestur að 18 lengdargráðu, sem liggur um Grímsey. Í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar í dag kemur fram í viðtali við Hálfdán Hálfdánarson, skipstjóra á Berki, sem staddur er úti fyrir Norðurlandi, að þar hafi menn beðið eftir því að fá leyfi til að nota troll. Loðnan að dælast um borð í Beiti NK, skip Síldarvinnslunnar, í marsmánuði fyrr á árinu.Vísir/Sigurjón Ólason „Við erum hérna í blíðviðri og það er töluvert af loðnu að sjá. Það er hins vegar ekki unnt að veiða hana í nót því hún stendur of djúpt. Loðnan þar sem við erum staddir núna er á 230 metrum. Hér væri örugglega hægt að ná góðum árangri í troll,“ er haft eftir Hálfdáni. „Við köstuðum einu sinni í fyrrinótt og fengum þá um 10 tonn. Sú loðna var fín og falleg, 43 stykki í kílóinu. Það eru hérna sex bátar að fylgjast með loðnunni en það kastaði einungis einn í nótt með engum árangri. Það var Heimaey,“ segir skipstjórinn á heimasíðu SVN. Hér má sjá frétt Stöðvar 2 þegar fyrsta skipið bjó sig til loðnuveiða þann 8. nóvember:
Sjávarútvegur Loðnuveiðar Tengdar fréttir Loðnutorfur fundnar á Hala en bræla hamlar veiðum Áhöfnin á Berki NK, skipi Síldarvinnslunar í Neskaupstað, er búin að sjá loðnutorfur á Halamiðum út af Vestfjörðum. Bræla hamlar hins vegar veiðum sem stendur en búist við að lægi í kvöld. 16. nóvember 2021 13:26 Fyrsta veiðiskipið ræst af stað á næstu loðnuvertíð Loðnuveiðar, sem gætu orðið þær mestu í tuttugu ár, eru að hefjast, þremur mánuðum fyrr en síðastliðinn vetur, og var fyrsta veiðiskipið að búa sig brottfarar í Sundahöfn í Reykjavík í dag. 8. nóvember 2021 22:21 Möguleiki á stærstu loðnuvertíð í tuttugu ár Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í gær grein fyrir því að hann hefði í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu. 13. október 2021 10:55 Aukinn hagvöxtur og hraðari efnahagsbati þökk sé loðnunni Greining Íslandsbanka telur að aukin loðnuveiði komi til með að auka hagvöxt um 0,8 prósentustig á næsta ári og ýta undir efnahagsbata eftir faraldurinn. 5. október 2021 16:07 Kennsla í loðnuveiði: Dæla úr nót annarra „Það er bara fundin torfa og kastað,“ svarar skipstjórinn á Beiti NK, Sturla Þórðarson, þegar við biðjum hann um að útskýra fyrir áhorfendum hvernig loðnuveiðar fara fram. 5. apríl 2021 07:43 Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Sjá meira
Loðnutorfur fundnar á Hala en bræla hamlar veiðum Áhöfnin á Berki NK, skipi Síldarvinnslunar í Neskaupstað, er búin að sjá loðnutorfur á Halamiðum út af Vestfjörðum. Bræla hamlar hins vegar veiðum sem stendur en búist við að lægi í kvöld. 16. nóvember 2021 13:26
Fyrsta veiðiskipið ræst af stað á næstu loðnuvertíð Loðnuveiðar, sem gætu orðið þær mestu í tuttugu ár, eru að hefjast, þremur mánuðum fyrr en síðastliðinn vetur, og var fyrsta veiðiskipið að búa sig brottfarar í Sundahöfn í Reykjavík í dag. 8. nóvember 2021 22:21
Möguleiki á stærstu loðnuvertíð í tuttugu ár Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í gær grein fyrir því að hann hefði í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu. 13. október 2021 10:55
Aukinn hagvöxtur og hraðari efnahagsbati þökk sé loðnunni Greining Íslandsbanka telur að aukin loðnuveiði komi til með að auka hagvöxt um 0,8 prósentustig á næsta ári og ýta undir efnahagsbata eftir faraldurinn. 5. október 2021 16:07
Kennsla í loðnuveiði: Dæla úr nót annarra „Það er bara fundin torfa og kastað,“ svarar skipstjórinn á Beiti NK, Sturla Þórðarson, þegar við biðjum hann um að útskýra fyrir áhorfendum hvernig loðnuveiðar fara fram. 5. apríl 2021 07:43