Liverpool snýtti Everton í Guttagarði Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. desember 2021 22:05 Blysi var skotið inn á völlinn er Mohamed Salah skoraði þriðja mark Liverpool í kvöld. Peter Byrne/Getty Images
Everton átti í raun aldrei roð í nágranna sína í Liverpool er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur 1-4 og ljóst að sæti Rafa Benitez, þjálfara Everton, er orðið virkilega heitt. Þó gestirnir séu með mun sterkara lið var búist við því að heimamenn gætu allavega staðið í lærisveinum Jürgen Klopp og þó staðan hafi verið 1-2 í hálfleik var um algjöra einstefnu að ræða. Fyrirliðinn Jordan Henderson kom sínum mönnum yfir strax á níundu mínútu og tíu mínútum síðar tvöfaldaði Mohamed Salah forystu gestanna. Ákváðu þá margir stuðningsmenn heimamanna að láta sig hverfa á braut. Það hafði því fækkað í stúkunni er Demarai Gray minnkaði muninn fyrir Everton á 38. mínútu, staðan 1-2 í hálfleik. Heimamenn stóðu í gestunum í upphafi síðari hálfleiks en Salah gerði út um allar vonir Everton með þriðja marki Liverpool á 64. mínútu. Stundarfjórðungi síðar fullkomnaði Diogo Jota svo kvöld gestanna með fjórða marki Liverpool. Staðan 4-1 gestunum í vil og reyndust það lokatölur kvöldsins. Enjoy that one, Reds? pic.twitter.com/YD8bGO4lKs— Liverpool FC (@LFC) December 1, 2021 Liverpool er sem stendur í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 31 stig að loknum 14 umferðum, tveimur stigum minna en topplið Chelsea. Everton er sem stendur í 14. sæti með 15 stig.
Enski boltinn Tengdar fréttir Benítez hangir á bláþræði fyrir enn einn Liverpool-slag sinn Rafael Benítez er sá knattspyrnustjóri í ensku úrvalsdeildinni sem veðbankar telja líklegastan til að missa starfið sitt. Liverpoolslagurinn í kvöld er því sennilega sá mikilvægasti af mörgum sem Spánverjinn hefur tekið þátt í. 1. desember 2021 16:31
Benítez hangir á bláþræði fyrir enn einn Liverpool-slag sinn Rafael Benítez er sá knattspyrnustjóri í ensku úrvalsdeildinni sem veðbankar telja líklegastan til að missa starfið sitt. Liverpoolslagurinn í kvöld er því sennilega sá mikilvægasti af mörgum sem Spánverjinn hefur tekið þátt í. 1. desember 2021 16:31
Uppgjörið: Víkingur - Borac 2-0 | Víkingur færist skrefi nær útsláttarkeppninni með góðum sigri Fótbolti
Uppgjörið: Víkingur - Borac 2-0 | Víkingur færist skrefi nær útsláttarkeppninni með góðum sigri Fótbolti