Hið vinsæla loftsteikingartæki hlaut ekki náð fyrir augum rýnihópsins sem valdi gjöfina út frá upplýsingum frá neytendum og verslunum um vinsælar sérvörur.
„Greinilegt er að ástandið sem kórónaveirufaraldurinn hefur skapað undanfarin tvö ár hefur eitthvað um það að segja hvernig neysluhegðun er í aðdraganda jóla þetta árið. Tíðarandinn virðist kalla á aukna vellíðan,“ segir í rökstuðningi RSV sem valdi síðast jólagjöf með þessum hætti árið 2015.
„Tillögur rýnihópsins að jólagjöf ársins einkenndust af auknum þægindum og vellíðan, einhverju notalegu og kósý, aukinni samveru og flestar hugmyndir mátti beint eða óbeint tengja við heilsu, bæði andlega og líkamlega.“
Heimafatnaður sem sé orðinn að tískuvöru
Notalegur fatnaður er það sem bar oftast á góma í umræðum rýnihópsins og rímar það við jólagjafaóskir neytenda, samkvæmt netkönnun Prósents. Þar sögðust flestir óska eftir því að fá fatnað eða fylgihluti í jólagjöf, eða 17% svarenda. Næst á eftir komu bækur með 16%, „ýmislegt“ með 11% og gjafabréf og upplifun með 9%.
„Líklega er það Covid ástandið og álagið undanfarin tvö ár sem gerir það að verkum að þægindi voru alsráðandi í umræðunum og aukin meðvitund um notagildi sem hafa haft áhrif á svarið við rannsóknarspurningunni í ár. En niðurstaðan er að jólagjöf ársins 2021 skuli vera; Jogging gallinn.“
Fatnaðurinn er sagður vinsæll meðal neytenda og falla einstaklega vel að tíðarandanum, sé bæði heimagalli og tískuvara, auk þess að vera fyrir alla aldurshópa og öll kyn.
„Jogging gallinn hefur á síðustu árum notið aukinna vinsælda og þróast úr því að vera íþrótta- eða heimafatnaður yfir í að vera háklassa tískuvara. En í dag má finna jogging galla frá flestum helstu tískuhúsum heims,“ segir í rökstuðningi RSV.
AirFryer kom einnig til greina
Loftsteikingartæki eða AirFryer var einnig nefndur til sögunnar í vali rýnihópsins en tækið virðist vera með vinsælustu raftækjunum í ár. Benda upplýsingar frá verslunum til þess að minnsta kosti 1.600 eintök hafi selst hér á landi í nóvember og sé þar með ein mest selda sérvara mánaðarins.
„Svipa vinsældir hans jafnvel til fótanuddtækisins sem var svo vinsælt hér um árið. Líklega hafa nuddbyssur verið fótanuddtæki ársins 2020 ef marka má umræður rýnihópsins.“
Fyrri jólagjafir RSV
2006 Ávaxta- og grænmetispressa
2007 GPS staðsetningatæki
2008 Íslensk hönnun
2009 Jákvæð upplifun
2010 Íslensk lopapeysa
2011 Spjaldtölva
2012 Íslensk tónlist
2013 Lífstílsbók
2014 Nytjalist
2015 Þráðlausir hátalarar eða heyrnartól