Lífið samstarf

Vinadagur í Stóra flugeldamarkaðnum

Stóri flugeldamarkaðurinn

Sérstök vinaverð eru í gangi hjá Stóra flugeldamarkaðnum.

Vinadagurinn brestur á með látum í Stóra flugeldamarkaðnum á morgun, þriðjudag. Hægt verður að næla sér í svakalegar sprengjur á einstöku verði allan daginn en opið verður frá klukkan 10 til 22. Á netinu er vinaverð þegar komið í gang og gildir til miðnættis á morgun. Rúnar Ólafsson, eigandi Stóra flugeldamarkaðarins segir sprengjugleði Íslendinga síst hafa dvínað síðustu ár. Met var slegið í fyrra.

„Ég hef verið í flugeldabransanum í 32 ár og við höfum aldrei selt eins marga flugelda og á síðasta ári, við áttum ekki eftir eitt einasta prik þegar við lokuðum á gamlársdag," segir Rúnar.

Vinadagurinn fyrir alla

„Við erum með mjög breiða línu af flugeldum og höfum frá upphafi flutt inn stórar sprengjur fyrir dellukalla. Við tókum upp á því að vera með lokaðan vinadag á facebook þar sem hægt var að nálgast flugelda á sérstöku verði. Við gátum þá afgreitt alla dellukallana á einu bretti. Ásóknin var alltaf gríðarleg og fyrir nokkrum árum ákváðum við því að opna Vinadaginn almenningi. Það sló í gegn.

Í fyrra vorum við í fyrsta skipti með vinadaginn á netinu líka og þá teygist hann yfir þrjá daga, 26., 27. og 28. desember. Það er eins í ár, Vinadagurinn gildir til miðnættis á morgun og þarna erum við að tala um verð sem sjást ekki annarsstaðar, enn er hægt að kaupa á "vinaverði" núna á vefsíðunni okkar www.storiflugeldamarkadurinn.is.

Þar getur þú lagt inn pöntun og sótt frá 28. desember þegar við opnum og til 31. desember þegar við lokum. Þú keyrir til okkar niður í verslun okkar Smiðshöfða 17 og við komum með pöntunina þína út í bíl. Hjá okkur verða allar sóttvarnir uppá 10! Við erum einnig með stórskemmtilegan Facebook leik í gangi þar sem einn heppinn getur unnið fyrir sig og vin sinn veglegan flugeldapakka,“ segir Rúnar

Hægt er að taka þátt í leiknum hér. Dregið verður á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.