Hamrarnir upp í fimmta sæti þrátt fyrir kjaftshögg Sindri Sverrisson skrifar 28. desember 2021 17:01 Said Benrahma kom West Ham í 2-1 um miðjan fyrri hálfleik. AP/David Cliff West Ham vann flottan útsigur gegn Watford, 4-1, og Crystal Palace vann Norwich 3-0 þar sem öll mörkin komu í fyrri hálfleik, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
West Ham vann flottan útsigur gegn Watford, 4-1, og Crystal Palace vann Norwich 3-0 þar sem öll mörkin komu í fyrri hálfleik, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Nígeríumaðurinn Emmanuel Dennis hélt áfram að búa til mörk fyrir Watford og kom liðinu yfir strax á 4. mínútu gegn West Ham. Það dugði þó skammt. Tomas Soucek og Said Benrahma skoruðu með tveggja mínútna millibili eftir tæplega hálftíma leik og komu gestunum yfir. Mark Noble skoraði úr vítaspyrnu á 58. mínútu og Nikola Vlasic gerði síðasta markið í uppbótartíma. West Ham komst þar með upp fyrir Tottenham, sem þó á tvo leiki til góða, og eru Hamrarnir nú með 31 stig í 5. sæti, eftir 19 leiki. Watford er við fallsvæðið, með aðeins 13 stig í 17. sæti. Crystal Palace gat leyft sér að hvíla Conor Gallagher gegn botnliði Norwich en vann samt 3-0. Odsonne Édouard kom að öllum mörkunum en hann skoraði það fyrsta úr víti og lagði upp hin tvö fyrir Jean-Philippe Mateta og Jeff Schlupp. Palace er nú í 9. sæti með 23 stig en Norwich áfram á botninu með aðeins 10 stig.
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Handbolti „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Fleiri fréttir Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjá meira