Lífið

Júlían og Ellen Ýr eignuðust stúlku

Árni Sæberg skrifar
Júlían J.K. Jóhannsson er nú tveggja barna faðir.
Júlían J.K. Jóhannsson er nú tveggja barna faðir. Vísir/Egill

Kraftlyftingaparið Ellen Ýr Jónsdóttir og Júlían J. K. Jóhannsson, eignuðust sitt annað barn á þriðjudaginn.

„Lítil draumadís er komin í heiminn - 12 merkur og 47.5cm af dásemd. Lífið er gott!“ segir Ellen Ýr við færslu á Instagram þar sem hún tilkynnti fæðingu stúlkunnar.

Fyrir eiga þau Júlían og Ellen Ýr einn son. Eðli málsins samkvæmt hefur hamingjuóskum rignt yfir fjölskylduna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.