Chelsea að stimpla sig úr toppbaráttunni Sindri Sverrisson skrifar 18. janúar 2022 21:54 EPA-EFE/Neil Hall Brighton og Chelsea gerðu 1-1 jafntefli í annað sinn á tuttugu dögum er liðin mættust í ensku úrvalsdieldinni í kvöld. Gestirnir í Chelsea tóku forystuna eftir tæplega hálftíma leik með marki frá Hakim Ziyech og staðan var því 0-1 þegar gengið var til búningsherbergja. Þrátt fyrir að gestirnir hafi verið meira með boltann í upphafi síðari hálfleiks voru það heimamenn sem skoruðu annað mark leiksins. Þar var á ferðinni Adam Webster þegar hann skallaði hornspyrnu Alexis Mac Allister í netið. Þetta reyndist seinasta mark leiksins og niðurstaðan varð því 1-1 jafntefli. Chelsea mistókst því að endurheimta annað sæti deildarinnar af Liverpool, og situr nú í þriðja sæti með 44 stig. Liðið hefur leikið 23 leiki og er 12 stigum á eftir toppliði Manchester City sem hefur leikið einum leik minna. Brighton situr hins vegar í níunda sæti deildarinnar með 29 stig eftir 21 leik. Enski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Borac 2-0 | Víkingur færist skrefi nær útsláttarkeppninni með góðum sigri Fótbolti
Uppgjörið: Víkingur - Borac 2-0 | Víkingur færist skrefi nær útsláttarkeppninni með góðum sigri Fótbolti