Lífið

Íslensk CrossFit stjarna á forsíðu Women´s Fitness

Elísabet Hanna Maríudóttir skrifar
Sara Sigmundsdóttir er ein stærsta CrossFit stjarna Íslands.
Sara Sigmundsdóttir er ein stærsta CrossFit stjarna Íslands. Mynd/Twitter/@CrossFitGames

CrossFit stjarnan Sara Sigmundsdóttir er glæsileg þar sem hún prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Women´s Fitness . Blaðið er virt og vinsælt rit sem hefur fjölmarga lesendur um allan heim og fjallar um hreyfingu og heilsu kvenna.

Í færslu sem Sara birti á samfélagsmiðli sínum fer hún yfir leið sína að afreksíþrótta manneskjunni sem hún er í dag. Henni finnst furðulegt að hugsa til þess að fyrstu sautján ár lífsins hafi hún ekki að stundað hreyfingu. Sara segist hafa átt í óheilbrigðu sambandi við mat og verið óánægð með sjálfa sig. 

„Eina ástæðan fyrir því að ég byrjaði að æfa var vegna þess að besta vinkona mín eignaðist kærasta og ég fann fyrir pressu að eignast líka kærasta,“ 

segir Sara. Hún endaði þó á því að græða enn mikilvægara samband en eftir að hún byrjaði að stunda reglulega hreyfingu varð hún ástfangin að CrossFit og hefur ekki stoppað síðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.