Mikið rætt um verðhækkanir veiðileyfa Karl Lúðvíksson skrifar 1. febrúar 2022 09:52 Veiðileyfi hafa hækkað mikið milli ára í sumum ánum Stangveiðimenn eru þessa dagana að bóka sig í veiði fyrir komandi sumar en töluverðar hækkanir hafa orðið á sumum svæðum.
Veiðileyfi fylgja lögmáli um framboði og eftirspurn og ef það er markaður fyrir veiðileyfi þrátt fyrir hækkun þá seljast þau leyfi. Veiðimenn hafa verið að ræða á hinum ýmsu spjallþráðum þær verðhækkanir sem hafa orðið á nokkrum svæðum og helst er að heyra að mönnum svíði hækkun sem hefur orðið í Stóru Laxá en ástæða þeirrar hækkunar má skýra að hluta með þeim markmiðum nýrra aðila að ánni að stórbæta á þjónustu við veiðimenn sem og breyttri svæðaskipan. Eins er mikið rætt um þær hækkanir sem hafa orðið á Norðurá og Bíldsfelli í Soginu en nokkrir hópar veiðimanna hafa ákveðið samkvæmt þeim þráðum sem við höfum fylgt ákveðið að segja skilið við þessi svæði því verðlagningin sé orðin þannig að erfitt sé að réttlæta það. Nokkur sjóbirtingssvæði eins og Vatnamót og Tungufljót hafa að sama skapi hækkað mikið. Aukin ásókn erlendra veiðimanna til landsins er líklega ástæða þess að margir leigutakar telja að veiðileyfi seljist vel þrátt fyrir þessar hækkanir og miðað við lauslega könnun á lausum dögum virðist það nefnilega vera málið.
Stangveiði Neytendur Mest lesið Vatnsdalsá opnaði í morgun Veiði Verður að gæda við Rio Grande til vors Veiði 1.004 fiska vika í Veiðivötnum Veiði Lokatölur úr Veiðivötnum Veiði Ytri-Rangá yfir 3.000 laxa; tvær vaktir með 161 lax Veiði Meira af tölfræði í Eystri Rangá 2020 Veiði Nýr leigutaki tekur við Stóru Laxá Veiði Ný glær flotlína frá Airflo Veiði Veiði í einni lengstu á landsins að hefjast Veiði Langá hækkaði um 30 sm í nótt Veiði