Skoðun

Látum verkin tala

Guðmundur Árni Stefánsson skrifar

Því er stundum haldið fram með réttu, að meirihluti Íslendinga eru jafnaðarmenn í hjarta. Vilja frelsi til athafna og jafnan rétt allra til náms, starfa og lífsgæða. Og rétta hjálparhönd til þeirra sem eiga á brattann að sækja. En þessi meirihluti landsmanna virðist hins vegar eiga með stundum erfitt að finna sér skjól, samhljóm í stjórnmálaflokkum, sem halda þessum gildum á lofti.

Kosningaúrslit síðari ári, bæði á sveitarstjórnarstigi og í alþingiskosningum endurspegla þetta. Samfylkingin, jafnaðarmannaflokkur Íslands, hefur átt undir högg að sækja. Nú þarf að sækja fram.

Ég var virkur í pólitík á árum áður. Var og er jafnaðarmaður, Hafnarfjarðarkrati. Hætti afskiptum af stjórnmálum, sáttur í hjarta og sneri mér að öðru – varð fulltrúi þjóðarinnar sem sendiherra Íslands í útlöndum. Það var þakklátt verkefni og skemmtilegt.

Verk að vinna

En heima er best. Það skynja langflestir Íslendingar, ekki síst þegar í harðbakkann slær. Það var mín reynsla, þegar ég var sendiherra Íslands á Indlandi og nærliggjandi löndum og Covid plágan byrjaði að geysa. Og ég og mitt samstarfsfólk reyndum að hjálpa fólki heim á leið.

Og nú er ég alkominn heim í hýra Hafnarfjörðinn og langar að leggja gott til samfélagsins. Finnst það skylda mín að leggja mitt að mörkum.

Þess vegna hef ég ákveðið að bjóða mig fram til forystu í Samfylkingunni í Hafnarfirði og freista þess að gera jafnaðarmenn að ráðandi afli í hafnfirskum stjórnmálum í komandi bæjarstjórnarkosningum í maí. Jafnaðarmenn voru um áratugaskeið akkerið í hafnfirskum stjórnmálaum og stóru umbæturnar og sigrarnir til hagsbóta fyrir bæjarbúa urðu þá til.

Prófkjör í Samfylkingunni 12.febrúar næstkomandi leggur línur í því sambandi og ég óska eftir stuðningi í oddvitasæti, í 1.sætið.

Jafnaðarmenn til forystu

Eðlilega er ég spurður: Hvað viltu gera til að bæta bæjarhag? Mitt svar er einfalt: Allt sem nauðsynlegt er. Það er víða verk að vinna og undir stjórn Sjálfstæðisflokksins síðustu átta ár hefur Hafnarfjörður dregist aftur úr. Fólksfjölgun er engin, húsnæðisframboð lélegt, þjónustu leikskóla og grunnskóla þarf að bæta- bæði gagnvart nemendum og ekki síður starfsfólki. Fólk fær seint eða ekki svör frá bæjaryfirvöldum við umleitunum sínum. Það þarf að gera svo margt og víða.

Það væri auðvelt að setja fram langan loforðalista; og lofa öllum allt. Ég mun ekki gera það, en ég vísa til minna fyrri starfa í pólitík, m.a. sem fyrrum bæjarstjóri í Hafnarfirði. Og það verklag sem ég viðhafði og mun gera áfram. Ég vil standa við þau fyrirheit, sem ég gef. Ég vil láta verkin tala.

Fái ég góðan stuðning til forystu í forvali Samfylkingarinnar 12.febrúar munu jafnaðarmenn leggja fram skýra valkosti og verkefnaskrá um endurbætur og uppbyggingu í Hafnarfirði í aðdraganda kosninganna í maí. Og við þau fyrirheit verður staðið verði Samfylkingin kölluð til verka í kosningunum.

Áfram Hafnarfjörður með jafnaðarmönnum!

Látum verkin tala!

Höfundur er fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði.




Skoðun

Sjá meira


×