Tíska og hönnun

Fóru með Patreki Jaime í fegrunarmeðferðir og brúnkusprautun

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Patrekur Jaime er viðmælandinn í nýjasta þættinum af Snyrtiborðinu með HI beauty.
Patrekur Jaime er viðmælandinn í nýjasta þættinum af Snyrtiborðinu með HI beauty. Undireins/Birgitta Stefánsdóttir

Í nýjasta þættinum af Snyrtiborðið með HI beauty eyða þær Heiður Ósk og Ingunn Sig heilum degi með áhrifavaldinum og Æði stjörnunni Patreki Jaime. 

Patti spáir mikið í útlitinu og í þættinum fá Heiður og Ingunn meðal annars að fara með honum í brúnkusprautun,  neglur, förðun og brow-lift og vax í þættinum. 

„Ég byrjaði sko að nota brúnkuklúta úr Bónus sem kostuðu 150 kall eða eitthvað hver klútur,“ viðurkennir Patti áður en hann fer í fyrsta sinn í „spray-tan.“ 

„Maður varð flekkóttastur. Það var í tíunda bekk. Ég var alltaf að beila á sundi og fór inn á bað á  fatlaðraklósettið og tók tölvu úr skólanum og horfði á Geordie Shore og setti á mig  brúnkukrem með brúnkuklútum. “

Patti varð samt smá stressaður þegar hann þurfti að skipta yfir í g-streng fyrir brúnkusprautunina.  Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Förðunarráð þáttarins er auðvitað á sínum stað.

Klippa: Snyrtiborðið - Patrekur Jaime

Snyrtiborðið með HI beauty kemur út á Lífinu á Vísi alla miðvikudaga og er hægt að horfa á eldri þætti HÉR.


Tengdar fréttir

Skrefið sem gerir augun bjartari og meira vakandi

Í hverjum þætti af Snyrtiborðinu með HI beauty gefa þær Ingunn Sig og Heiður Ósk góð ráð tengd förðun. Í öðrum þætti talaði Ingunn Sig um notkun á ljósum augnblýanti sem mikilvægt skref í förðun. 

Allt það besta frá hátískunni í París

Paris Haute Couture tískuvikan „kickstartaði“ tískuárinu í enda janúar og fylgdust Ingunn Sig og Heiður Ósk í HI beauty að sjálfsögðu með. Við gefum þeim orðið. 

„Hyljari er ein af mínum uppáhalds vörum“

Í hverjum þætti af Snyrtiborðinu með HI beauty gefa þær Ingunn Sig og Heiður Ósk góð ráð tengd förðun. Í fyrsta þættinum talar Heiður Ósk um hyljara. 

Euphoria æði á samfélagsmiðlum

Þættirnir Euphoria hafa vakið mikla athygli frá því að fyrsta serían kom út en eftir að önnur serían kom virðast þættirnir vera að gera allt vitlaust á samfélagsmiðlum. Áhorf þáttanna tvöfaldaðist frá fyrstu til annarrar seríu og förðunin og tískan í þáttunum hefur farið eins og stormsveipur um netheimana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.