Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Rakel Sveinsdóttir skrifar 2. nóvember 2026 07:00 Það er vel hægt að læra ýmislegt af svörum Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, um þau þrjú atriði sem hann hefði viljað vita tvítugur. Það fyrsta sem hann nefnir er meiri þolinmæði við börnin sín - eitthvað sem hann sér í dag eftir að hafa ekki verið betri í sem uppalandi. Vísir/Anton Brink Á mánudögum spyrjum við fólk úr alls kyns áttum og eldra en fertugt: Hvaða þrennt hefðir þú viljað vita tvítug/ur? „
Það er frábært að fá tækifæri til þess að velta þessari spurningu fyrir mér. Af nógu er að taka. Hitt er svo annað að ég efast um að þau atriði sem ég nefni hefðu haft mikil áhrif á mig þegar ég var tvítugur. Þroskinn til að læra þessar lexíur var einfaldlega ekki til staðar – og það tók tíma að byggja hann upp,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra. Daði hefði viljað vita þetta þrennt tvítugur: 1. Þolinmæði og ást „Langafi minn Willjam Þorsteinsson sagði víst alltaf: börnin slípuðu af mér hornin. Mamma sagði líka alltaf: þú getur ekki elskað börnin þín of mikið. Ég er núna sammála þeim báðum — núna. Ég var of upptekinn af hlutverki uppalandans með elstu börnin. Það er eitt af því fáa sem ég sé eftir. Börn verða að fá að læra á heiminn af eigin mistökum, allavega upp að vissu marki. Því eldri sem ég verð því rýmri finnst mér að þau mörk eigi að vera. Rúmur tími, mikil þolinmæði og kærleiksríkt aðhald hefur reynst mér best. Nú njóta barnabörnin og hundurinn þess. Vona ég.“ Á leik með Krumma. Daði segist hafa verið yfirlýsingaglaður sem ungur maður. Hann hefði viljað átta sig betur á því fyrr að stór orð eru líklegri til að meiða og lítil orð geta verið alveg jafn áhrifarík. Vísir/Anton Brink 2. Talaðu varlega Ég var yfirlýsingaglaður sem ungur maður. Það hefur sem betur fer rjátlað af mér. Stór orð eiga stundum við, en það verður að nota þau varlega. Annars missa þau merkinguna. Stór orð eru líka líklegri til að meiða, þótt það sé ekki ætlunin. Lítil orð geta mjög vel skilað sama árangri, sé þeim skipulega beitt.“ Daði hefði viljað vita það tvítugur, hversu mikilvægt það er að tæma hugann reglulega. Því erfið verkefni geta tekið sinn toll og yfirtekið allt; hvort heldur sem er í einkalífi eða starfi.Vísir/Anton Brink 3. Finndu verkefni sem yfirtaka hugann Að takast á við erfið verkefni, hvort sem er í vinnu eða einkalífi, tekur toll. Mín reynsla er að mikilvægt sé að eiga sín eigin verkefni, utan þess, sem taka hugann allan. Verkefni sem eru þannig að þau veita frí frá öllu öðru. Taka yfir hugann. Í mínu tilfelli er gott bras besta leiðin til að tæma hugann og núllstilla – ná núvitund. Besta brasið fyrir mig eru áskoranir sem líklegt, en ekki víst, er að ég muni leysa. Jeppaferðir að vetri (góðar festur), viðgerðir (helst án varahluta – og enn betra ef ekki er gert ráð fyrir að gert sé við hlutinn yfirhöfuð) eða fara í fjallgöngu (á fjall sem ekki er göngustígur upp á – í þoku). Gott bras er gulli betra.“
Þetta þrennt... Tengdar fréttir „Abbababb, ertu stelpa í fótbolta?“ Þegar Bryndís Valsdóttir, heimspekingur, kennari og fyrrum landsliðskona í knattspyrnu og atvinnumanneskja erlendis er spurð um æskuna, nefnir hún skólagönguna fyrst og fremst. 12. október 2025 07:00 Pabbi fyrir tvítugt, ekkill þrítugur, afi um fertugt og veltir rúmum milljarði „Þetta er erfiðasta hjónaband sem ég hef verið í,“ segir Sigurður Kristinn Lárusson framkvæmdastjóri skellihlæjandi þegar hann lýsir frábæru sambandi sínu við meðeiganda sinn í Stálvík, Jón Trausta Sverrisson. 7. september 2025 08:00 Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Það er eitthvað svo ævintýralegt við að taka spjallið við Hrund Gunnsteinsdóttur. Stundum eins og verið sé að tala um handrit að einhverri bíómynd. Því já; Þannig virðist líf Hrundar hafa verið. 22. júní 2025 08:02 Morð og meiri missir: „Ég hélt henni í fanginu og sagði að allt yrði í lagi“ Það er svolítið merkilegt að heyra Lindu Dröfn Gunnarsdóttur, framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins, tala um hvað hún upplifir sig heppna í lífinu. Og svo brosandi er hún í samverunni að það allra síðasta sem manni dettur í hug er hversu mörg og erfið áföll þessi tæplega fimmtuga og flotta kona hefur upplifað. 23. mars 2025 08:00 Galdrasaga um fimm 50+ konur: „Við vorum fimm konur að fæða sama barnið“ Það var flissað og hlegið, stundum talað á alvarlegri nótum, stoltið skein í gegn en líka einlægnin og ástríðan; Fimm konur í spjalli, allar úr sitthvorri áttinni en þó eitthvað svo líkar. 6. júlí 2025 08:01 „Enginn nema ég þekkir þessa Ragnhildi“ „Því gleði er ekkert feik,“ segir Ragnhildur Gísladóttir tónlistarkona. Sem mælir með því að við einfaldlega klæðum okkur í gleðina. Svona eins og við séum að klæða okkur í buxur. Eða einhverja aðra flík. 8. maí 2026 07:01 Mest lesið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Áskorun Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Orðrómur um ástir breskra Traitors stjarna Bíó og sjónvarp Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Fleiri fréttir Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Þetta er undarlegt…: Að hágrenja yfir lauknum Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Dýra steikin á matseðlinum er ekki þarna til að seljast Þetta er undarlegt…: QWERTY-stafaruglið á símum og lyklaborðum 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Eldfimt 50+: Tengdamömmusögur Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Sjá meira
„Abbababb, ertu stelpa í fótbolta?“ Þegar Bryndís Valsdóttir, heimspekingur, kennari og fyrrum landsliðskona í knattspyrnu og atvinnumanneskja erlendis er spurð um æskuna, nefnir hún skólagönguna fyrst og fremst. 12. október 2025 07:00
Pabbi fyrir tvítugt, ekkill þrítugur, afi um fertugt og veltir rúmum milljarði „Þetta er erfiðasta hjónaband sem ég hef verið í,“ segir Sigurður Kristinn Lárusson framkvæmdastjóri skellihlæjandi þegar hann lýsir frábæru sambandi sínu við meðeiganda sinn í Stálvík, Jón Trausta Sverrisson. 7. september 2025 08:00
Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Það er eitthvað svo ævintýralegt við að taka spjallið við Hrund Gunnsteinsdóttur. Stundum eins og verið sé að tala um handrit að einhverri bíómynd. Því já; Þannig virðist líf Hrundar hafa verið. 22. júní 2025 08:02
Morð og meiri missir: „Ég hélt henni í fanginu og sagði að allt yrði í lagi“ Það er svolítið merkilegt að heyra Lindu Dröfn Gunnarsdóttur, framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins, tala um hvað hún upplifir sig heppna í lífinu. Og svo brosandi er hún í samverunni að það allra síðasta sem manni dettur í hug er hversu mörg og erfið áföll þessi tæplega fimmtuga og flotta kona hefur upplifað. 23. mars 2025 08:00
Galdrasaga um fimm 50+ konur: „Við vorum fimm konur að fæða sama barnið“ Það var flissað og hlegið, stundum talað á alvarlegri nótum, stoltið skein í gegn en líka einlægnin og ástríðan; Fimm konur í spjalli, allar úr sitthvorri áttinni en þó eitthvað svo líkar. 6. júlí 2025 08:01
„Enginn nema ég þekkir þessa Ragnhildi“ „Því gleði er ekkert feik,“ segir Ragnhildur Gísladóttir tónlistarkona. Sem mælir með því að við einfaldlega klæðum okkur í gleðina. Svona eins og við séum að klæða okkur í buxur. Eða einhverja aðra flík. 8. maí 2026 07:01