Þægilegur sigur Real Madrid á Alaves Sigurður Orri Kristjánsson skrifar 19. febrúar 2022 22:00 Karim Benzema að skora þriðja mark Real Madrid EPA-EFE/Emilio Naranjo Eftir markalausan fyrri hálfleik þá vann topplið Real Madrid þægilegan 3-0 sigur á Alaves á heimavelli í kvöld í spænsku úrvalsdeildinni, la Liga. Fyrir leikinn var Real Madrid með fjögurra stiga forystu á Sevilla á toppi deildarinnar en Alaves sat í nítjánda sætinu með tuttugu stig og því ljóst að þetta var eiginlega skyldusigur fyrir Madrídinga. Eftir markalausan fyrri hálfleik sem var eign heimamanna þá tókst þeim að koma boltanum í netið á 63. mínútu. Marco Asensio fékk þá boltann á hægri kantinum frá Karim Benzema og klíndi boltanum upp í hornið fjær. Frábært mark. Benzema var í þjónustuhlutverki í dag framan af og lagði aftur upp mark á 80. mínútu. Í þetta sinn var það Vinicius Jr. sem skoraði eftir undirbúning franska framherjans. Frábært spil heimamanna skilaði Benzema upp að endamörkum og Vinicius Jr. átti ekki í vandræðum með að klára fyrirgjöfina. Benzema gerði svo sjálfur úti um leikinn á vítapunktinum á 91. mínútu leiksins. Þægilegur sigur Real Madrid sem hefur nú sjö stiga forystu á toppi deildarinnar. Alaves er áfram í nítjánda og næst síðasta sætinu. Spænski boltinn
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn