Enski boltinn

Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Geronimo Rulli varði tvær vítaspyrnur í vítakeppninni og sá til þess að Manchester City komst í átta liða úrslitin.
Geronimo Rulli varði tvær vítaspyrnur í vítakeppninni og sá til þess að Manchester City komst í átta liða úrslitin. Getty/Lexy Ilsley

Manchester City, Bournemouth, Crystal Palace og Sunderland komust áfram í átta liða úrslit enska deildabikarsins.

Manchester City vann Brighton & Hove Albion í vítakeppni eftir að leikurinn endaði með 2-2 jafntefli.

Malick Junior Yalcouyé kom Brighton í 1-0 á 30. mínútu en Mateo Kovacic eftir stoðsendingu Phil Foden tíu mínútum síðar. Georginio Rutter kom Brighton aftur yfir á 47. mínútu en Vitor Reis jafnaði á 72. mínútu.

Manchester City vann vítakeppnina 4-3. Mateo Kovacic var reyndar fyrstur til að klikka en leikmenn Brighton klikkuðu á tveimur síðustu vítaspyrnum sínum.

Geronimo Rulli tryggði sigurinn með því að verja vítaspyrnu Lewis Dunk. Hann hafði varið frá Yasin Ayari í vítaspyrnunni á undan.

Phil Foden, Enzo Fernández, Jérémy Doku og Rayan Cherki skoruðu úr sínum vítaspyrnum fyrir City.

Bournemouth vann 3-0 heimasigur á Aston Villa þar sem Amine Adli, Lewis Cook og Álvaro Rodriguez skoruðu mörkin.

Edward Nketiah tryggði Crystal Palace 1-0 útisigur á Fulham í uppgjöri Lundúnaliðanna.

Sunderland vann 3-2 sigur á Brentford þar sem Chemsdine Talbi, Timur Tuterov og Malick Fofana voru allir á skotskónum í fyrri hálfleik. Callum Wilson minnkaði muninn í 3-1 undir lok fyrri hálfleiks og Igor Thiago kom muninum niður í eitt mark í uppbótartíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×