Villareal og Juventus skildu jöfn Sindri Sverrisson skrifar 22. febrúar 2022 22:00 Villareal og Juventus gerðu jafntefli á Spáni. David S. Bustamante/Soccrates/Getty Images Villareal og Juventus skildu jöfn, 1-1, í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Það var nýji maðurinn Dusan Vlahovic sem kom Juventus í 1-0 forystu strax á fyrstu mínútu leiksins eftir stoðsendingu frá Danilo. Þetta reyndist eina mark fyrri hálfleiksins, en á 66. mínútu stýrði Daniel Parejo fyrirgjöf Etienne Capoue í netið og jafnaði metin fyrir Villareal. Heimamenn í Villareal voru meira með boltann og ógnuðu marki gestanna meira í kvöld, en niðurstaðan varð 1-1 jafntefli. Liðin mætast á ný þann 16. mars á Ítalíu þar sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar er undir. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn
Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Íslenski boltinn
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn
Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Íslenski boltinn