Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Sindri Sverrisson skrifar 27. október 2026 23:17 Alexia Putellas hefur nú hlotið Gullboltann þrisvar sinnum á sínum stórkostlega ferli. Getty/Jeff Spicer Besta fótboltakona heims, hin spænska Alexia Putellas, hlaut mikil viðbrögð við einlægri þakkarræðu sinni eftir að hún hlaut Gullboltann í þriðja sinn á ferlinum á glæsilegu verðlaunahófi í London í gærkvöld.
Putellas hafði áður hlotið Gullboltann árin 2021 og 2022 og á þeim tíma virtist hún nánast ósnertanleg, á hátindi ferilsins. Það var því vægast sagt áfall þegar hún sleit krossband í hné skömmu fyrir EM sumarið 2022. Það tók hana ár að komast aftur af stað en bakslag kom í meiðslin og um tíma var ekkert útlit fyrir að Putellas yrði aftur sú besta í heimi. Á þeim tíma sótti hún styrk til sinna nánustu og í gærkvöld, eftir að hafa þakkað liðsfélögum sínum, þjálfurum og fleirum, talaði Putellas sérstaklega til fjölskyldunnar sinnar. „Mig langar að ljúka þessu á því sem skiptir mestu máli. Þessi bikar er viðurkenning fyrir mína vinnu en ég verð að þakka móður minni, fjölskyldu minni, vinum mínum og öllu stuðningsneti mínu utan vallar. Ef ég gat notið þess að spila aftur á síðasta tímabili eins og ég gerði, þá er það alfarið ykkur að þakka. Ég man eftir þeim stundum þegar fóturinn gaf sig, þegar ég þurfti að læra að ganga aftur, hlaupa aftur og skjóta aftur. Þegar efasemdirnar voru sem mestar voruð þið alltaf til staðar og hjálpuðuð mér í gegnum þetta. Ég elska ykkur öll innilega,“ sagði Putellas í sigurræðunni sem sjá má á Youtube. View this post on Instagram A post shared by Alexia Putellas (@alexiaputellas) Fyrr í ræðunni hafði hún hrósað sínum gömlu liðsfélögum í Evrópumeistaraliði Barcelona sérstaklega og sagt að hver þeirra væri verðugur handhafi Gullboltans. Putellas, sem í sumar gekk svo til liðs við London City Lionesses sagði svo: „Það hefur verið svo ánægjulegt að spila við hlið hverrar og einnar ykkar. Við höfum átt ótrúlegar stundir saman sem lið. Við sigruðumst á ýmsum erfiðleikum, meiðslum og augnablikum sem við áttum ekki von á sem lið og ég er afar stolt sem fyrirliði.“ Skiptir ekki máli hvort þú ert strákur eða stelpa og hvaðan þú kemur Putellas var líka með skýr skilaboð til ungra krakka um allan heim um að láta ekki efasemdir annarra stöðva sig. „Til allra stráka og stelpna um allan heim – ef þið elskið fótbolta og ef þið viljið spila fótbolta, spilið þá fótbolta. Það skiptir engu máli hvort þú ert strákur eða stelpa, það skiptir engu máli hvaðan þú kemur. Ekki hlusta ef einhver segir við þig: „Þú getur þetta ekki.“ Hafðu trú á þér. Það mikilvægasta er að ef þú átt þér draum þá skaltu elta hann. Jafnvel þó að þú þurfir einhvern tímann að byrja aftur alveg frá grunni. Og það mikilvægasta er að þú gerir þetta af ást og ástríðu,“ sagði Putellas.
Fótbolti Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Fleiri fréttir Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Sjá meira