Varamaðurinn Kepa skúrkurinn þegar Liverpool vann deildabikarinn Arnar Geir Halldórsson skrifar 27. febrúar 2022 19:32 Afdrifarík ákvörðun. vísir/Getty Liverpool er deildabikarmeistari eftir sigur á Liverpool í langri vítaspyrnukeppni á Wembley þar sem spænski markvörðurinn Kepa Arrizabalaga átti afar slæma innkomu. Ekkert mark var skorað í venjulegum leiktíma sem verður að teljast ótrúlegt miðað við fjölda góðra færa. Chelsea fékk fullt af góðum færum í fyrri hálfleik en Liverpool fékk líklega besta færi fyrri hálfleiks þegar Sadio Mane brenndi af afar góðu færi um miðbik fyrri hálfleiks. Sama var upp á teningnum í síðari hálfleik nema hvað að Liverpool tókst að koma boltanum í netið þegar Joel Matip skoraði en markið var dæmt af vegna rangstöðu í aðdraganda marksins. Þar sem ekkert mark var skorað var framlengt. Varamaðurinn Romelu Lukaku skoraði laglegt mark á 98.mínútu en var dæmdur rangstæður. Edouard Mendy, sem hafði átt frábæran leik í marki Chelsea, var skipt af velli á 119.mínútu þegar ljóst var að stefndi í vítaspyrnukeppni. Í hans stað kom Kepa Arrizabalaga og hann átti afleita innkomu. Kepa...MISSES!@LFC: @ChelseaFC: #EFL | #CarabaoCupFinal— Carabao Cup (@Carabao_Cup) February 27, 2022 Í vítaspyrnukeppninni voru markverðirnir; áðurnefndur Kepa og Caohmin Kelleher afar ósannfærandi á milli stanganna þar sem allar spyrnur útileikmanna höfnuðu í netinu. Staðan var því 10-10 þegar þeir þurftu sjálfir að taka vítaspyrnu. Kelleher skoraði af mjög miklu öryggi og setti pressuna á Kepa sem réði illa við það og negldi boltanum hátt yfir markið. . . .#CarabaoCupFinal pic.twitter.com/5f5ZQwzBNt— Liverpool FC (@LFC) February 27, 2022 Enski boltinn