Lífið

Fullt út úr dyrum á friðartónleikum í Hallgrímskirkju

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hópur fólks mætti í úkraínskum þjóðbúningum á friðartónleikana í Hallgrímskirkju.
Hópur fólks mætti í úkraínskum þjóðbúningum á friðartónleikana í Hallgrímskirkju. Vísir/Egill

Boðað var til friðartónleika í Hallgrímskirkju klukkan 18 í dag vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar komu fram. Tónleikarnir voru í beinni útsendingu á Vísi.

„Úkraínumenn sæta nú miskunnarlausum árásum frá nágrönnum sínum, Rússum. Við fyllumst sorg, reiði og varnarleysi yfir þessari mannvonsku og illsku. Öllum sem vilja sýna samhug með úkraínsku þjóðinni og rússneskum almenningi sem mætir grimmd og harðræði fyrir að mótmæla innrásinni, er boðið á tónleika í Hallgrímskirkju,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum.

Klippa: Friðartónleikar í Hallgrímskirkju

Fram komu meðal annars: Ragnar Kjartansson, Kór Hallgrímskirkju, KK, Ellen Kristjánsdóttir, Þorsteinn Einarsson í Hjálmum, Alexandra Chernyshova, Jói P og Króli, Elín Ey, Sigga og Beta og Eyþór Gunnarsson. Ávörp flytja Christofer Christofer og Kári Stefánsson.

Hægt er að sjá upptökuna af friðartónleikunum sem voru í beinni útsendingu á Vísi í heild sinni fyrir ofan og nokkur atriðanna hér fyrir neðan.


Ræða Kára Stefáns­sonar

Klippa: Ræða Kára Stefáns­sonar á friðar­tón­leikum

Sigga, Beta og Elín - We Shall Overcome

Klippa: Sigga, Beta og Elín - We Shall Overcome

KK - Englar himins grétu í dag

Klippa: KK - Englar himins grétu í dag

Kór Hallgrímskirkju - Hljóðnar nú haustblær

Klippa: Kór Hallgrímskirkju - Hljóðnar nú haustblær

Ræða Kristófers Gajowski

Klippa: Ræða Kristófers Gajowski á friðar­tón­leikum

Ragnar Kjartansson og Davíð Þór - We're Not Gonna Take It

Klippa: Ragnar Kjartansson og Davíð Þór - We're Not Gonna Take It

Ellen Kristjáns og Þorsteinn Einarsson - Blowin In The Wind

Klippa: Ellen Kristjáns og Þorsteinn Einarsson - Blowin In The Wind





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.