Chelsea vann öruggan sigur gegn botnliðinu Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 10. mars 2022 21:29 Chelsea vann góðan sigur gegn Norwich í kvöld. Julian Finney/Getty Images Leikmennn Chelsea létu fréttir af eiganda félagsins ekki hafa áhrif á sig er liðið heimsótti botnlið Norwich í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Chelsea tók forystuna snemma leiks og vann að lokum öruggan 3-1 sigur. Það var varnarmaðurinn Trevoh Chalobah sem kom Chelsea yfir strax á þriðju mínútu þegar hann skallaði hornspyrnu Mason Mount í netið áður en sá síðarnefndi tvöfaldaði forystuna tíu mínútum síðar. Staðan var því 2-0 þegar flautað var til hálfleiks, en heimamenn í Norwich fengu líflínu þegar um tuttugu mínútur voru til leiksloka. Trevoh Chalobah handlék þá knöttinn innan vítateigs og eftir skoðun myndbandsdómara var vítaspyrna dæmd. Teemu Pukki fór á punktinn og minnkaði muninn fyrir heimamenn með öruggri spyrnu. Gestirnir í Chelsea létu mark heimamanna ekki slá sig út af laginu og Kai Havertz gulltryggði 3-1 sigur Chelsea á lokamínútu venjulegs leiktíma eftir undirbúning frá N'Golo Kante. Chelsea situr sem fyrr í þriðja sæti deildarinnar með 56 stig eftir 27 leiki, 13 stigum á eftir toppliði Manchester City. Norwich situr hins vegar sem fastast á botni deildarinnar með 17 stig eftir 28 leiki, fimm stigum frá öruggu sæti. Enski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Borac 2-0 | Víkingur færist skrefi nær útsláttarkeppninni með góðum sigri Fótbolti
Uppgjörið: Víkingur - Borac 2-0 | Víkingur færist skrefi nær útsláttarkeppninni með góðum sigri Fótbolti