Fjölnir getur unnið fyrsta stóra titilinn í boltaíþrótt í kvöld Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. mars 2022 13:30 Fjölniskonur hafa unnið marga sæta sigra í vetur. Með einum í viðbót verða þær deildarmeistarar í Subway-deild kvenna. Bára Dröfn Kristinsdóttir Kvennalið Fjölnis í körfubolta getur brotið blað í sögu félagsins ef það vinnur Val í hreinum úrslitaleik um deildarmeistaratitilinn í Subway-deild kvenna í kvöld.
Fjölnir er með tveggja stiga forskot á Val á toppi Subway-deildarinnar fyrir lokaumferðina sem fer fram í kvöld. Fjölniskonur og Valskonur mætast í Dalhúsum og svo lengi sem Grafarvogsbúar tapa ekki með meira en 25 stigum verða þeir deildarmeistarar. Ef það gerist verður það ekki bara fyrsti stóri titilinn sem körfuboltalið Fjölnis vinnur heldur einnig fyrsti stóri titill Grafarvogsfélagsins í boltaíþrótt. Fjölnir var stofnaður 1988 og er því 34 ára á þessu ári. Karlalið Fjölnis í fótbolta og körfubolta hafa bæði í tvígang komist í bikarúrslit en allir fjórir úrslitaleikirnir töpuðust. Þá hefur Fjölnir aldrei verið nálægt því að vinna Íslandsmeistaratitil í boltaíþrótt. Aliyah Mazyck er stigahæsti leikmaður Subway-deildarinnar á tímabilinu með 27,8 stig að meðaltali í leik.vísir/vilhelm Fjölniskonur geta skrifað nýjan kafla í sögu félagsins með sigri á Íslandsmeisturum Valskvenna í kvöld. Fjölnir er á öðru ári í Subway-deildinni en styrkti sig vel fyrir tímabilið og hefur verið í efri hlutanum í allan vetur. Fjölnir, Valur, Haukar og Njarðvík eru örugg með sæti í úrslitakeppninni sem hefst á mánudaginn. Eina spurningin er í hvaða sætum liðin enda. Leikur Fjölnis og Vals hefst klukkan 19:15 og verður sýndur á Stöð 2 Sport. Eftir leikinn verður svo farið yfir lokaumferðina í Subway Körfuboltakvöldi.
Subway-deild kvenna Fjölnir Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira