Þessi leiðinlegi rauði fýlukall, sem sést á skjánum í strætó á myndinni hér að ofan, hefur síðustu vikurnar hrellt marga farþega strætó sem reyna að greiða fyrir far sitt í gegn um nýja greiðslukerfið - Klapp.
Kerfið var innleitt fyrir síðustu jól en hefur ekki farið alveg nógu vel af stað.
„Nei, nei það er alveg rétt. Við höfum átt í ákveðnum erfiðleikum með þetta. Við getum sagt kannski bæði óvæntum og væntum vegna þess að þetta er gríðarlega mikil breyting,“ segir Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó.

Allt of mörg tilfelli þar sem fólki er ekki hleypt um borð
Og viðskiptavinir hafa látið í sér heyra. Fjöldi fólks hefur kvartað yfir nýja kerfinu og gagnrýnt það á samfélagsmiðlum - gagnrýni sem Jóhannes segir að hafi náð eyrum Strætó.
Klapp appið var ekki forritað, það var copy/paste-að upp úr dagbók Satans.
— Ragnar Eyþórsson (@raggiey) March 16, 2022
Og af hverju er "Hvar er strætó" hætt að virka í gamla appinu?
Vill @straetobs ég fái mér annan einkabíl?
„Já, já. Við höfum heyrt af fullt af óánægju og skiljum það bara mjög vel. Og erum svo sem bara miður okkar að þetta hafi ekki bara gengið svona einn, tveir og þrír. En þetta er svona það sem gerist kannski stundum í þessum stóru hugbúnaðarverkefnum og mjög flóknu,“ segir Jóhannes.
Nokkur vandamál hafi komið upp eftir að kerfið var tekið í notkun. Sambandsleysi margra skanna í strætisvögnum varð til þess að stundum lásu þeir ekki farmiðann.
Samvkæmt upplýsingum frá strætó voru tilfellin allt frá örfáum til um tuttugu á dag á tímabili þar sem skannarnir lásu ekki kort fólks, sem áttu þó að vera góð og gild.
Jóhannes segir að því hafi því verið beint til bílstjóra að leyfa viðskiptavinum að njóta vafans í þeim tilfellum.
„En það komu samt upp nokkuð mörg tilfelli þar sem vagnstjórinn hleypti viðkomandi ekki um borð eða óskaði eftir að hann yfirgæfi vagninn. Því miður. En þetta gerist. Þetta er stór hópur, það eru margir á ferðinni en sem betur fer eru þetta ekkert allt of mörg tilfelli en kannski allt of mörg,“ segir Jóhannes.
Betrumbætt app í næstu viku
En það er ekki bara sambandsleysi og almennir gallar sem fara í taugarnar á fólki.
Að mati margra farþega vantar nefnilega ýmislegt í appið. Þar er ekki hægt að leita að ferð eða fylgjast með strætóferðum í rauntíma. Strætó lofar þó bót á þessu, jafnvel strax eftir helgi.
„Leiðarvísirinn kemur inn í appið og appið á að virka betur. Það hefur einnig verið svona smá vandamál með það,“ segir Jóhannes.
Jóhannes á því ekki von á öðru en að fólk geti farið að klappa eðlilega með strætó á allra næstu dögum.
Fjallað var um Klapp þegar nýja greiðslukerfið var tekið upp í vetur í Kvöldfréttum Stöðvar 2. Hægt er að horfa á það hér að neðan: