Vakti konuna og bað hana um að keyra sig upp á spítala: Hélt ég væri að deyja Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. apríl 2022 08:00 Bubba Watson mætir á Mastersmótið í vikunni þar sem hann hefur tvisvar fagnað sigri. EPA-EFE/TANNEN MAURY Bandaríski atvinnukylfingurinn Bubba Watson hefur sagt frá þeim andlegu erfiðleikum sem hann hefur verið að glíma við síðasta rúma áratuginn. Hann hefur endað margoft inn á sjúkrahúsi.
Bubba, sem hefur unnið Mastersmótið tvívegis, hefur unnið sér í kringum fimmtíu milljónir dollara í verðlaunafé á ferlinum en gerðist atvinnumaður árið 2002. Watson fór nýverið í viðtal hjá Independent þar sem hann fór yfir glímu sína við kvíðaköst eða ofsahræðslu. A decade ago @BubbaWatson hit one of golf's greatest shots to win The Masters. But in the years afterwards, his success became inseparable from his anxiety. We talked about how that vicious cycle led to weight loss, hospital visits and fears for his life.https://t.co/N0PjKAVLPf— Tom Kershaw (@trlkershaw) April 1, 2022 Bubba er án efa einn af frægari kylfingum heimsins undanfarin áratug eftir sigra sína á Mastersmótunum 2012 og 2014. Hann hefur alls unnið tólf mót á bandarísku mótaröðinni. Bubba er nú 43 ára gamall og í þessu viðtali má sjá að líf hans síðasta áratuginn hefur ekki verið neinn dans á rósum. Watson segir að fyrsta kvíðakastið hafi komið árið 2007 og þá hélt hann að hann væri að fá hjartaáfall. „Ég flýtti mér heim frá mótinu, vakti konuna mína og bað hana um að keyra mig upp á bráðamóttöku. Ég man eftir því að ég hugsaði um það hvort ég væri að deyja,“ sagði Watson. Árið 2011, árið fyrir fyrsta sigur hans á Mastersmótinu þá ágerðist vandamálið. Watson sagði opinberlega frá því að hann væri að glíma við magakveisu. Hið rétt var að hann hafði átt mjög erfitt eftir að faðir hans dó skyndilega úr krabbameini. It s hard to believe next week will mark 10 years since winning my first @themasters title. Man, life comes at you fast! It's gonna be a big week as I relive the moment that changed my life. Go turn on IG notifications so you don t miss the throwback moments. #themasters pic.twitter.com/Zhl94URaPt— bubba watson (@bubbawatson) March 27, 2022 „Ég gat ekki andað. Ég var hræddur og hélt ég væri að deyja,“ sagði Watson. Eftir að Bubba endaði á bráðamóttöku árið 2016 þá ákvað hann að segja frá vandamálum sínum. Hann skrifaði bók á síðasta árið þar sem hann fór yfir þessa hluti sem og þær áskoranir sem hann er að glíma við vegna þessara andlegu veikinda. Hann leggur áherslu á það að láta það sem gerist á golfvellinum ekki hafa áhrif á hans líf. „Ég varð þeirrar blessunar aðnjótandi að geta skilið golfið eftir á vellinum. Ég er þakklátur fyrir að vera á lífi. Ég var kominn alveg á botninn en tókst að koma mér til baka,“ sagði Watson sem er á leiðinni á Mastersmotið seinna í þessari viku.
Golf Masters-mótið Mest lesið Sjötíu ára titlaþurrð á enda Enski boltinn Gengur út ef hann fær sömu meðferð og Glazerarnir Fótbolti United nálgast efri hlutann Enski boltinn Merino aftur hetja Arsenal Enski boltinn Sjáðu hetjudáðir Stefáns Teits í enska boltanum í gær Enski boltinn Sæmdu hvor aðra Gullmerki KKÍ Körfubolti Haaland sló enn eitt metið í gær Fótbolti Fulham nær Evrópu eftir sigur á Tottenham Enski boltinn Tvíburarnir áttu Arnars og Bjarka stund með unglingaliði Man. Utd Enski boltinn „Hver einasti blettur ætti að vera hluti af leiknum“ Enski boltinn Fleiri fréttir Spaun með naumt forskot á Players en McIlroy á enn möguleika Justin Thomas jafnaði vallarmetið á öðrum degi Players Gjammandi áhorfandinn biður McIlroy afsökunar McIlroy tók síma af gjammandi áhorfanda Tiger Woods sleit hásin Tiger syrgir móður sína og sleppir Players Enn að jafna sig á fráfalli móður sinnar og óviss hvort hann keppir á Players Ryder Cup snýr aftur á Stöð 2 Sport Var í mótorhjólagengi, sat inni en er nú kominn á Opna breska Fór tvisvar sinnum holu í höggi á sama hringnum Hlógu að Tiger: Eitt það vandræðalegasta á ferlinum Tiger Woods dregur sig úr keppni á sínu eigin móti Tiger snýr aftur á PGA-mótaröðina Opna bandaríska fyrsta risamótið til að opna dyrnar fyrir LIV Tiger syrgir móður sína Sjá meira