Skoðun

Það er nægt bygginga­land í Hafnar­firði

Arnhildur Ásdís Kolbeins skrifar

Allir þurfa þak yfir höfuðið. Ungu hjónin sem eru að hefja búskap með eða án barna, námsmaðurinn sem vill standa á eigin fótum, einstæðu foreldrarnir, einstaklingar á öllum aldri, farandverkafólk, miðaldra hjónin þar sem ungarnir eru flognir úr hreiðrinu, aldraðir, öryrkjar og hinar ýmsu fjölskyldugerðir. Þarfirnar eru mismunandi þar sem ólík íbúðaform henta ólíkum einstaklingum og fjölskyldum. Því er mikilvægt að fjölbreytt framboð húsnæðis sé fyrir hendi bæði til eignar og leigu.

Viðvarandi skortur hefur verið á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu undanfarin ár. Hann stafar meðal annars af því hversu þunglamalegt skipulagsferlið er og af tregðu ráðandi meirihluta til að viðhalda nægu lóðaframboði. Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins setur bæjarfélögum vissar skorður hvað varðar uppbyggingu nýrra svæða og er í núverandi svæðisskipulagi mikil áhersla lögð á þéttingu byggðar. Hafnarfjörður hefur því takmarkaða möguleika innan gildandi skipulags til að bæta við nýbyggingarsvæðum. Nægt landrými er hins vegar fyrir hendi og því allir möguleikar á því að mæta hinni miklu lóðaþörf . Þótt þéttingarreitir séu mikilvægir, þá er ljóst að byggingamagn á slíkum reitum verður alltaf takmarkað, auk þess sem mun dýrara er að byggja þéttingarreiti heldur en ný óbyggð svæði og húsnæði á slíkum svæðum hentar því ekki efnaminni fjölskyldum. Því er mikilvægt að endurskoða svæðisskipulagið strax að loknum kosningum til að lyfta þeim klafa sem er á skipulagsmálum bæjarins í dag.

Á kjörtímabilinu sem nú er að renna sitt skeið, eða frá 1. janúar 2018 til 1. janúar 2022, hefur íbúum Hafnarfjarðar samkvæmt tölum Hagstofu einungis fjölgað um 1% eða um 351 íbúa á sama tíma og íbúafjölgun annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu var miklu meiri eða allt að 23%. Hér er um algera stöðnun að ræða í Hafnarfirði sem að mestu leyti má rekja til heimatilbúins skorts á lóðaframboði.

Það ófremdarástand sem ríkt hefur á húsnæðismarkaðnum hefur m.a. leitt til þeirrar óásættanlegu stöðu að atvinnuhúsnæði hefur í auknum mæli verið nýtt sem íbúðarhúsnæði en í nýrri skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um búsetu í atvinnuhúsnæði kemur fram að slík búseta sé hlutfallslega langmest í Hafnarfirði eða 1,6% íbúa. Brunavörnum, öryggi og aðbúnaði íbúa er iðulega ábótavant í slíku húsnæði enda ekki ætlað til búsetu.

Miðflokkurinn og óháðir í Hafnarfirði ætla að breyta byggðamörkum í svæðisskipulagi og tryggja aukið og fjölbreytt lóðaframboð fyrir íbúða- og atvinnuhúsnæði, auk þess að lækka lóðagjöld svo unnt sé að byggja hagkvæmari íbúðir. M-listinn vinnur fyrir þig!

Höfundur skipar 2. sætið á M-lista Miðflokksins og óháðra í Hafnarfirði í komandi sveitarstjórnarkosningum.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×