Lífið

Gleymdu barninu heima: „Hvar er Stefán?“

Elísabet Hanna skrifar
Magnús og Ingibjörg fara yfir ástina og lífið með Ása.
Magnús og Ingibjörg fara yfir ástina og lífið með Ása. Aðsend.

Magnús Geir Þórðarson og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir eiga fimm börn og lentu í því ótrúlega atviki að upplifa alvöru „Home Alone“ augnablik þegar þau voru á leiðinni upp á flugvöll.

Kynntust nokkrum árum áður en þau urðu ástfangin

Magnús Geir er Þjóðleikhússtjóri og Ingibjörg Ösp er forstöðumaður samkeppnishæfnissviðs Samtaka Atvinnulífssins og stjórnarformaður Hörpu. Þau kynntust fyrst hjá Leikfélagi Akureyrar þar sem þau unnu saman en svo liðu nokkur ár áður en þau hittust aftur og ástin tók völd. 

Þau Magnús og Ingibjörg voru voru gestir í hlaðvarpinu Betri helmingurinn með Ása en umsjónarmaður þáttanna er Ásgrímur Geir Logason. Hann fær til sín þjóðþekkta einstaklinga ásamt þeirra betri helming og ræðir um ástarsambandið, lífið og tilveruna.

Héldu líklega Flugfélaginu á lofti

Í upphafi sambandsins voru þau búsett á sitthvorum landshlutanum þar sem hann bjó í Reykjavík og Ingibjörg á Akureyri. Þau segjast líklega hafa haldið Flugfélaginu á lofti þar sem þau bjuggu lengi á sitthvorum staðnum eða allt þar til þeirra yngsti sonur fæddist en segja má að þau hafi lent í allskonar ævintýrum út frá því.

Klippa: Betri helmingurinn með Ása - Magnús og Ingibjörg

Stefán gleymdist heima

„Við vöknuðum fyrir sex og lokuðum inn til barnanna og græjuðum allt og allir í bíla og út og bara svo læsum við húsinu og erum komin til Akureyrar úr sveitinni og hérna erum við bara „jæja heyrðu það er nú vonandi að helgin svo gangi vel hjá honum Stefáni.“ Svo bara Stefán? Hvar er Stefán?“ 

Segir Ingibjörg frá því ótrúlega atviki að upplifa alvöru „Home Alone“ augnablik. Þá hafði gleymst að vekja son þeirra Stefán sem varð eftir sofandi heima en sem betur fer eiga þau góða að sem gátu hjálpað þeim.


Þáttinn má heyra í heild sinni hér að neðan en þar ræða þau leikhúsið, covid, sveitalífið, smurbrauðstertur, London, rómantík og ástina. 


Tengdar fréttir

Spá­konan vissi að þau ættu eftir að enda saman

Linda og Siggi kynntust í menntaskóla og urðu þau fljótt góðir vinir. Það var þó ekki fyrr en leiðir þeirra lágu aftur saman á fullorðinsárunum sem neistinn kviknaði á milli þeirra og hafa þau verið saman síðan.

Voru á leið í glasa­frjóvgun þegar þau fengu ó­vænt já­kvætt ó­léttu­próf

Einar og Milla höfðu verið samstarfsfélagar í þónokkur ár þegar ástin kviknaði á milli þeirra. Þau giftu sig í miðjum heimsfaraldri og eiga þau nú von á sínu fyrsta barni saman. Þau tala opinskátt um það að hafa glímt við ófrjósemi, en þau voru á leiðinni í glasafrjóvgun þegar kraftaverkið kom óvænt undir.

Hægða­stoppandi lyf gerðu Sigga ó­leik á fyrsta stefnu­mótinu

„Ég vissi ekki að hún væri einhleyp. En eftir á er bara mjög fínt að hafa haldið það, því ég var ekkert stressaður í kringum hana,“ segir Siggi Þór um fyrstu kynnin við unnustu sína Sonju. Þau smullu saman og fóru fljótlega á sitt fyrsta stefnumót sem tók óvæntan snúning fyrir Sigga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.