Hrunið hefur verið rakið til þess að virði svokallaðs Terra Luna-myntkerfis nær þurrkaðist út á einum sólarhring í vikunni - sem kom af stað keðjuverkun og fældi fjárfesta.
Stærstu rafmyntirnar, Bitcoin og Ethereum, fengu að kenna á því en virði þeirrar fyrrnefndu hefur til að mynda hrunið um 50 prósent frá því það stóð sem hæst í vetur. Sérfræðingur í rafmyntum segir það alvarlegasta þó miklar lækkanir á virði annarra og minni rafmyntaverkefna, eins og Avax og Solana.
„Það er það stærsta sem við höfum séð hingað til á svona stuttum tíma og langstærsti viðburður sem við höfum séð í því,“ segir Kristján Ingi Mikaelsson, eigandi Visku digital assets og sérfræðingur í rafmyntum.
„En það voru sautján milljarðar Bandaríkjadala sem soguðust þarna niður og ýttu svolítið boltanum af stað og svo fengum við á mánudaginn mestu lækkun síðustu áratugi á hlutabréfamörkuðum sem var alls ekki að hjálpa þessu heldur.“
Rosaleg staða
Í nýrri könnun Seðlabankans á eignarhaldi Íslendinga á „sýndarfé“, eins og bankinn kallar rafmyntir, sögðust 8,7 prósent svarenda hafa fjárfest í slíku. Það kom bankanum á óvart hversu margir þeirra höfðu fjárfest í öðrum tegundum sýndarfjár en Bitcoin eða Ethereum; eða 57 prósent.
„Þá gæti ég haldið að 30-40 prósent af fólki í rafmyntum sem er að kaupa eitthvað annað en Bitcoin og Ethereum sé nánast búið að tapa 90 prósent af því sem það setti í þetta. Þetta er búið að vera rosalegt,“ segir Kristján.
Samtals hlaupi tapið auðveldlega á milljónum króna, að mati Kristjáns. Tveir hafi leitað til hans um aðstoð í hruni vikunnar en hann reiknar með að mun fleiri hafi farið illa úti. Hann segir þetta áminningu um að fara varlega í fjárfestingum í heimi rafmynta, einkum þegar kemur að verkefnum sem ekki hafa fest sig í sessi. Kristján telur þrátt fyrir þróun síðustu daga ekki tilefni til að hafa áhyggjur af framhaldinu.
„En þetta er alvarlegt mál. Og heimurinn verður þyngri áður en hann verður betri í fjárfestingum almennt.“