Atvinnulífið hefur fjallað nokkuð um þessi mál en tölur í Bandaríkjunum og Evrópu sýna að fólk er í síauknum mæli að taka ákvörðun um að hætta í vinnunni og gera jafnvel róttækar breytingar.
The Great Resignation er tímabil vinnumarkaðarins núna. Eða Stóra uppsögnin.
Þá sýna tölur einnig að giggurum fjölgar á methraða, en giggarar er sá hópur fólks sem kýs að starfa sjálfstætt en ekki sem fastráðnir launþegar.
Í þessari viku mun Atvinnulífið fjalla sérstaklega um nýjar áherslur í mannauðsmálum og hvað mögulega þarf til, svo ekki stefni í skort á vinnuafli.
Við byrjum vikuna á því að fá nokkur góð ráð hjá Herdísi Pálu Pálsdóttur, stjórnunarráðgjafa og stjórnendaþjálfa en hún gaf út bókina Völundarhús tækifæranna árið 2021, ásamt Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur. Sú bók fjallar sérstaklega um þá þróun sem er að sýna sig með fjölgun giggara og fyrirséðum breytingum á vinnumarkaði.
Við báðum Herdísi um góð ráð og dæmi fyrir vinnustaði til að bregðast við þessari þróun.
„Það er nú reyndar ansi margt í þessu samhengi sem hægt er að nefna og ekki endilega það sama fyrir alla vinnustaði en hér koma nokkrir þættir sem ættu að nýtast öllum, við að skapa eftirsóknarverðari vinnustaði, til að laða að og halda í gott fólk. Útfærslan þarf þó að taka mið af aðstæðum á hverjum stað,“ segir Herdís Pála.
Góðu ráð Herdísar: Það sem vinnustaðir geta gert
1. Stjórnun
Fækkið daglegum verkefnum stjórnenda.
Setjið meiri tíma í að sinna mannaforráðum, auka og bæta samskipti, byggja upp og viðhalda trausti. Veita endurgjöf og leiðbeina. Sýna fólki áhuga og umhyggju. Vita hvernig fólki líður og hvort það er sátt í starfi. Mynda sterk tengsl svo fólki finnist það tilheyra og vilji síður fara annað. Til að lesa í aðstæður og framtíðina.
2. Þjálfun
Auka þarf mjög alla þjálfun, ekki síst vegna hraðrar tækniþróunar og breytinga á störfum og starfsumhverfi.
Einnig þarf að auka stjórnendaþjálfun, stjórnendur eru í lykilhlutverki við að laða að og halda í gott fólk
Þjálfun í aðlögunarhæfni nýtist sem dæmi bæði stjórnendum og almennu starfsfólki mjög vel þar sem breytingar eru stöðugar og sífellt hraðari.
3. Innri vinnumarkaður
Gerið vinnustaðinn að vinnumarkaði fyrir fólk sem þegar er í starfi. Finnið leiðir til að auka tækifærin fyrir það til að prófa eitthvað nýtt, læra og þróast á vinnustaðnum.
Brjótið niður múra á milli deilda og starfsheita. Gefið fólki fleiri og fjölbreyttari tækifæri, til að sinna verkefnum utan núverandi deildar eða starfsheitis, svo það þurfi ekki að fara annað til að fá slík tækifæri.
4. Aukinn sveigjanleiki
Horfið á sveigjanleika með gleiðlinsu en ekki með rörsýn. Sveigjanleiki snýst ekki bara um val um að vinna á vinnustaðnum eða heima. Eða klukkan hvað fólk mætir og hættir.
Brjótið störf upp í verkefni. Fjölgið tegundum ráðningarforma. Horfið á frammistöðu umfram unna tíma. Veitið fólki frelsi til að gigga samhliða föstu starfi. Styðjið fólk í að vinna á nýjum stöðum, taka stundum vinnufrí (e. workcation) og svo líka reglulega algjört frí (e. vacation). Styðjið fólk til heilbrigðrar samþættingar vinnu og einkalífs.
5. Vinnustaðarmenning, fjölmenning og velsæld
Skoðið hverju, hvaða hegðun og frammistöðu, þið eruð að veita mesta athygli og hvað þið látið viðgangast.
Aukið fjölbreytileika og fjölmenningu á vinnustaðnum og passið einnig vel upp á góða inngildingu (e. inclusion).
Styðjið vel við starfsfólk sem einstaklinga, þeirra líkamlegu, andlegu, félagslegu og fjárhagslega heilsu, þeirra almennu velsæld.
Hannið vinnuumhverfið þannig að öllum líði vel þar og langi að vera þar.