Atvinnulíf

Þegar þreyttir starfs­menn mæta til vinnu eftir frí

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það eru margir starfsmenn að mæta aftur til vinnu eftir sumarfrí í dag. Eða eftir þessa viku. Vinnuveitendur eru hvattir til að nýta endurkomutímann sem ákveðna hópeflisleið, með mjúkri upphitun í stað þess að demba verkefnum og álagi strax af stað.
Það eru margir starfsmenn að mæta aftur til vinnu eftir sumarfrí í dag. Eða eftir þessa viku. Vinnuveitendur eru hvattir til að nýta endurkomutímann sem ákveðna hópeflisleið, með mjúkri upphitun í stað þess að demba verkefnum og álagi strax af stað. Vísir/Getty

Verslunarmannahelgin er ákveðin hápunktur sumarsins. Enda finnst mörgum eins og sumarið sé eiginlega búið þegar þessari helgi líður.

Margir taka þó frí út þessa viku. Á meðan aðrir mæta galvaskir til vinnu á þriðjudegi; Oft dauðþreyttir eftir frábært frí.

Þennan fyrsta vinnudag er því um að gera að vinnuveitendur mæti starfsfólki á miðri leið. En skelli ekki á það alls kyns verkefnum og álagi. Nær sé að aðstoða starfsfólk við að forgangsraða verkefnum og hvetja fólk til að gefa sér tíma í að útbúa fyrsta verkefnalistann sinn.

Oft er talað um „mjúka“ eða hægfara upphitun þennan fyrsta dag. Þar sem áherslan er ekkert síður lögð á að starfsfólk nái að njóta samverunnar, deila ferðasögum og svo framvegis. Því oft hefur starfsfólk ekki hist lengi, fólk er jú í sumarfríum á mismunandi tímum.

Sumir mæla með því að starfsfólk haldi „Out of office“ tilkynningunni í tölvupóstinum fram að hádegi fyrsta daginn eftir frí. Þannig myndist svigrúm til að lesa yfir tölvupósta, koma sér inn í verkefni á ný og heyra helstu fréttir úr vinnunni.

Vinnuveitendur eru líka hvattir til að huga vel að vinnustaðnum þennan fyrsta dag eftir frí. Þannig að upplifun fólks sé jákvæð og notaleg þegar fólk mætir aftur til vinnu.

Í raun getur þessi fyrsti vinnudagur eftir frí verið ágætis hópeflisdagur. Ávinningur vinnuveitenda af því að fara ekki of skart af stað getur því verið margvíslegur.

En nóg um góðu ráðin til vinnuveitenda. Hér eru líka nokkur snilldarráð fyrir starfsfólk sem er að koma sér í gang aftur eftir gott frí.

Hér eru líka nokkur ráð fyrir þá sem tóku vel á því um verslunarmannahelgina.


Tengdar fréttir

Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta

Við gerum okkur oft ekki grein fyrir því hvað það eru margir sem vinna einir. Til dæmis í lítilli verslun eða sjoppu, iðnaðarmenn, fólk í sérhæfðum störfum eins og þýðendur eða fólk í fjarvinnu. Fólk í viðgerðarþjónustu og fleira.

Í vinnutengdri ástarsorg

Nei við erum ekki að fara að tala um framhjáhaldið sem óvart virtist komast upp á Coldplay-tónleikunum um daginn. En við erum samt að fara að tala um ástarsorg í vinnunni.

Nýtt trend: Sami stjórnandinn að vinna fyrir mörg fyrirtæki

Það hefur ótrúlega margt breyst í atvinnulífinu um allan heim síðustu árin. Ekki aðeins vegna tækniþróunar heldur er það smátt og smátt að verða raunveruleiki að það að vinna frá níu til fimm á einhverjum vinnustað er hægt og rólega að hverfa sem „normið.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×