Bílar

Myndband: Fyrstu myndir af Polestar 3

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Polestar 3.
Polestar 3.

Rafbílaframleiðandinn Polestar opinberaði nýlega fyrstu myndina af væntanlegum Polestar 3. Rafjeppling sem ætlað er að auka vöxt og markaðshlutdeild Polestar, sérstaklega í Bandaríkjunum.

Með yfirlýsingu um heimsfrumsýningu birti Polestar nýtt myndband og fyrstu opinbera myndin af bílnum.

„Polestar 3 er jeppinn fyrir rafmagnsöldina. Hönnunareinkenni okkar þróast með þessum hágæða, stóra, rafmagnsjeppa, með sterkan, einkennandi karakter vörumerkisins,“ segir Thomas Ingenlath, forstjóri Polestar. „Með þessum bíl innleiðum við „sport“ aftur í jeppann, trú stefnu okkar um afburða aksturseiginleika.“

Thomas Ingenlath bætir við: "Þetta er stór áfangi fyrir fyrirtækið okkar, eykur vaxtarhraðann og færir okkur í átt að næsta áfanga."

Thomas Ingenlath með Polestar 2 og gyllta stýrinu.

Polestar stefnir að því að setja nýjan bíl á markað á hverju ári næstu þrjú árin, frá og með Polestar 3, og stefnir á að fjölga alþjóðlegum mörkuðum sem það starfar á í 30 fyrir árslok 2023. Þetta styður áætlanir Polestar um að tífalda sölu á heimsvísu frá um það bil 29.000 bílum árið 2021 í um 290.000 bíla í lok árs 2025.






×