Kveður hafið eftir rúma hálfa öld á sjó Samúel Karl Ólason skrifar 12. júní 2022 11:00 Kristján í aðgerð. Björn Steinbekk Eftir 55 ára sjómennsku ákvað Kristján Björnsson, sem varð sjötugur um síðustu áramót, að setjast í helgan stein. Björn Steinbekk, sonur Kristjáns, ákvað að skrásetja kveðju föður síns til hafsins. „
Það var að sögn föður míns auðveld ákvörðun að halda ungur til sjós. Í raun kom aðeins tvennt til greina, að gerast sjómaður eða vörubílstjóri og hið síðarnefnda þótti honum fjarri því eins spennandi kostur og að sækja sjóinn. Á sjöunda áratug tuttugustu aldar fór skólakerfið engum silkihönskum um unga menn og konur sem voru lesblind, ofvirk og með dágóðan snert af athyglisbresti,“ segir Björn í bloggi hjá 66°Norður í tilefni af sjómannadeginum. „Föður mínum fannst ekki koma til greina að feta menntaveginn frekar. Þessi orkumikli og myndarlegi unglingur var í erfiðri stöðu. Þegar hann stóð sig vel í skólanum fundu kennararnir leiðir til þess að hæðast að honum og ef hann stóð sig illa var það sama uppi á teningnum. Það reyndist honum því auðveld ákvörðun að fá pláss á síldarbát frænda síns fljótlega eftir sextán ára afmælisdaginn sinn." Kristján fyrir síðasta túrinn.Björn Steinbekk Kristján sjálfur segir í myndbandi sem Björn gerði að það hafi ekkert annað verið í myndinni en að fara á sjóinn. Annaðhvort það eða að verða vörubílstjóri. Hann var sjö eða átta ára gamall þegar hann fór í fyrsta sinn á sjóinn með föður sínum. Fyrsta „atvinnumannstúrinn“ fór Kristján í janúar 1968. Þá hafi hann verið nýorðinn sextán ára gamall og farið túr á Seley í Norðursjó. Æsilegar sögur Í áðurnefndri færslu segir Björn að samanburður á lífi sjómanna árið 1968 og því umhverfi sem þeir starfa við í dag sé eins og að bera saman veröldina fyrir og eftir tilkomu internetsins. „Faðir minn minnist þess þegar hann hélt til síldveiða í Norðursjó og deildi klefa með fjórum öðrum. Vinnufötin voru þvegin með þeim hætti að þau voru dregin á eftir bátnum í köldum sjónum og skoluð á eftir með vatni til að hreinsa burt saltið. Þvottavélar, sjónvarpstæki eða einfaldar samskiptaleiðir við ástvini voru munaður sem hvorki áhöfnin né útgerðarmenn gátu leyft sér. Faðir minn hefur upplifað þetta allt. Múlaberg SI-22.Björn Steinbekk Hann hefur róið á bátum og skipum af öllum toga og fer ævinlega fögrum orðum um tíma sinn til sjós. Hann man eftir öllum sem hann hefur verið til sjós með. Hann hefur eignast fleiri vini en hann óraði nokkru sinni fyrir og sögurnar sem hann segir eru stundum svo æsilegar að maður kemst ekki hjá að velta því fyrir sér hvort líf hans til sjós sé uppspuni einn. Eitthvað sem á sér stað í hliðstæðri veröld og verður aðeins upplifað á hafi úti og sjómenn halda út af fyrir sig,“ segir Björn. Trollið híft.Björn Steinbekk Verði að goðsögn og þjóðsögu Hann segist hafa fundið sig knúinn til að skrásetja kveðju föður síns til hafsins. „Ég áttaði mig á því að saga hans er mikilvæg yngri kynslóðum sem ekki vita hvað Sony Walkman er, skilja ekki hvers vegna ekkert sjónvarp var á fimmtudögum og allan júlímánuð á Íslandi og hvers vegna sala á bjór var ekki heimiluð á Íslandi fyrr en 1. mars 1989. Ástæðan er sú að menn eins og faðir minn verða ekki til í framtíðinni.“ Börn segir að svona menn verði að goðsögn og þjóðsögu. Einhverju sem átti sér stað í gamla daga. „Til sjós er hann leiðtogi. Sá sem hægt er að treysta á að bregðist við vandamálum sem upp koma við erfiðar aðstæður og á bátinn gefur, eins og gjarnan vill verða í vályndum veðrum á Norður-Atlantshafi. Hann er líka þeim kostum gæddur að geta sagt sömu söguna aftur og aftur í messanum og alltaf líður manni eins og maður sé að heyra hana í fyrsta sinn. Þetta krefst persónutöfra og af þeim hefur hann nóg. Fyrir pabba hefur hafið verið annað heimili í hálfan sjötta áratug. Heimili sem hann er nú í þann mund að yfirgefa þegar hann sest í helgan stein," segir Björn. Kristján fór fyrst á sjóinn sem sjómaður í janúar 1968.Björn Steinbekk
Sjómannadagurinn Sjávarútvegur Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira