Samkvæmt höfundi rannsóknarinnar, John Murphy, yfirgreinandi bílaiðnaðarins hjá Bank of Amreica Merrill Lynch, munu risarnir tveir frá Detroit taka fram úr Tesla um miðjan áratug. Þeir muni auka markaðshlutdeild sína um sem nemur 10% hvor um sig. Aukningin er að sögn greinanda einkum vegna Ford F-150 Lightning og Silverado EV pallbílanna.

„Ríkjandi staðan sem Tesla hefur notið á rafbílamarkaði, sérstaklega í Bandaríkjunum er liðin undir lok. Miklar vendingar eru væntanlegar í öfuga átt á næstu fjórum árum,“ John Murphy.
Murphy telur að Tesla missi megnið af markaðshlutdeild sinni vegna þess að framleiðandinn er ekki að auka framboð sitt nægjanlega hratt. Sérstaklega ekki í ljósi þess að rótgrónir framleiðendur eru að koma á rafbílamarkaðinn af meiri þunga með breiðara vöruúrval.
Framkvæmdastjórar hjá Ford og GM hafa sagst ætla að ná toppsætinu af Tesla á þessum áratug. Ford reiknar með að smíða tvær milljónir rafbíla fyrir árið 2026. GM reiknar með að geta smíðað meira en tvær milljónir bíla í Norður-Ameríku og Kína samanlagt á árinu 2025.
Önnur niðurstaða rannsóknarinnar var sú að 60% allra nýskráninga árið 2026 verði tvinnbílar eða hreinir rafbílar.