Segjast ekki hafa brugðist illa við ákvörðun Þróttara Bjarki Sigurðsson skrifar 3. júlí 2022 12:02 Tvö þúsund keppendur voru skráðir til leiks á N1-mótinu sem fór fram á Akureyri um helgina. N1-mótið Mótsstjórn N1-mótsins segist lítið hafa getað gert þegar Þróttarar neituðu að spila leik gegn FH í lokaleik þeirra í gær. Tilkynning um ákvörðunina hafi borist þeim seint og bitni helst á leikmönnunum.
Í gær fóru lokaleikir N1-mótsins á Akureyri fram en á mótinu keppa drengir úr 5. flokki í knattspyrnu. Lið Þróttar í Reykjavík átti að spila leik um fimmta sætið við lið FH en mætti ekki til leiks. Þjálfari liðsins sagði ástæðuna vera að lið FH hafi ekki sýnt íþróttamannslega hegðun í leik fyrr á mótinu. Þá hafi mótsstjórn brugðist illa við því þegar Þróttarar tilkynntu að þeir ætluðu ekki að spila leikinn. Þróttarar sendu frá sér yfirlýsingu á Twitter í gær þar sem félagið segist harma að ábyrgðaraðilar mótsins hafi ekki tekið strax á málunum. Sævar Pétursson, formaður KA og einn stjórnenda mótsins, segir það hafa verið lítið sem mótsstjórn gæti gert. „Ég reyndar skil ekki hvað Doddi [þjálfari Þróttar] á við með því að við höfum brugðist illa við. Hann kemur inn og tilkynnir okkur þetta þegar leikurinn er að byrja, það mætir ekki Þróttara-lið til leiks. Við förum að spyrjast fyrir og þá tilkynnir hann þetta. Það er svo sem lítið sem við getum gert, ef þetta er þeirra ákvörðun þá hafa þeir fullan og frjálsan vilja til að taka þá ákvörðun. Það eina sem við segjum er að okkur þyki þetta leiðinlegt því þetta er að bitna á ellefu og tólf ára strákum sem eru að missa þarna einn leik úr sínu móti en styðjum þá ákvörðun,“ segir Sævar. Á mótinu voru spilaðir um níu hundruð leikir og þykir Sævari leitt að af þeim öllum sé eini leikur mótsins sem ekki var spilaður það eina sem fólk talar um. Yfirlýsing knattspyrnudeildar Þróttar að loknu N1-móti. pic.twitter.com/tjlgQxqMIU— Þróttur (@throtturrvk) July 2, 2022 Aldrei gerst áður Verið var að halda mótið í þrítugasta og sjötta skiptið en Sævar segir að það hafi aldrei gerst áður að lið neiti að spila leik. „Það gerist á hverju ári að það koma upp einhver hitamál, þau voru sennilega færri í ár en oft áður.“ Þekkt er að foreldrar á íþróttamótum sem þessum séu æstari en börnin sjálf og eigi það til að missa sig á hliðarlínunni. Saga um slíkt foreldri fór í gang á samfélagsmiðlum í gær og átti foreldri að hafa öskrað ljótum orðum í átt að barni sem var að keppa. „Raunveruleikinn er þannig að í hita leiksins þá var ellefu ára gutti sem sagði þetta við annan leikmann. Forsvarsmenn þess félags komu inn í mótsstjórn eftir leik og báðust afsökunar fyrir hönd félagsins,“ segir Sævar. Komnir til að vera Einhverjir hafa kallað eftir því að einfaldlega banna foreldra á fótboltamótum þar sem þeir setja of mikla pressu á keppendur. Sævar telur að öskrandi foreldrar sé vandamál sem er komið til að vera. Það sé ekki hægt að banna alla því sumir kunni ekki að haga sér. Hvenær ætlum við hreinlega að banna foreldra á þessum mótum og leyfa þjálfurunum og krökkunum að njóta sín? Foreldrar drengja í Þrótt neituðu semsagt að spila leikinn við FH þvi þeim fannst FH vera svo miklir tuddar þegar liðin mættust í riðlinum #lifi https://t.co/iQFJeoYk66— Styrmir Sigurðsson (@StySig) July 2, 2022 Sævar segir að þrátt fyrir þetta leiðinlega atvik hafi mótið gengið vel í ár. „Mótið í ár gekk eiginlega fullkomlega upp fyrir okkur. Leikirnir gengu eins og í sögu, tíminn hélt og engar tafir. Við vorum heppin með veður, sumir segja að það sé alltaf þannig hjá okkur fyrir norðan. Ég held að yfir 99 prósent af þátttakendum og gestum séu yfir höfuð mjög ánægðir með mótið.“
Akureyri Íþróttir barna Þróttur Reykjavík FH Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Fleiri fréttir Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Sjá meira