„Loksins þegar við sáum fram á að geta teflt honum fram í góðu formi þá gerist þetta“ Sindri Sverrisson skrifar 8. ágúst 2022 12:52 Sveinn Andri Sveinsson hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Aftureldingu en hann lék með liðinu í tvö tímabil. vísir/hulda margrét Sveinn Andri Sveinsson hefur ákveðið að yfirgefa Aftureldingu til að spila með liði Empor Rostock í þýsku 2. deildinni, við litla kátínu Gunnars Magnússonar þjálfara Aftureldingar.
Þetta kemur fram á vef handbolta.is í dag þar sem Gunnar staðfestir að Sveinn Andri sé óvænt á förum til Empor Rostock. Sveinn Andri, sem er 23 ára leikstjórnandi, kom til Aftureldingar frá ÍR fyrir tveimur árum en náði ekki að blómstra eins og hann hefði kosið enda settu meiðsli stórt strik í reikninginn. Hann skoraði aðeins 24 mörk í 15 leikjum á síðustu leiktíð. „Loksins þegar við sáum fram á að geta teflt honum fram í góðu formi þá gerist þetta,“ segir Gunnar við handbolta.is og er bersýnilega óánægður með þá ákvörðun Sveins Andra að yfirgefa Mosfellsbæinn á þessum tímapunkti. Gunnar segir að um mikil vonbrigði sé að ræða, ekki síst vegna þess hve stutt sé í að Íslandsmótið hefjist. Afturelding tekur á móti Val í fyrstu umferð eftir sléttan mánuð. Empor Rostock hafnaði í 15. sæti af 20 liðum í þýsku 2. deildinni í handbolta á síðustu leiktíð. Liðið byrjar nýja leiktíð á leik við Essen á útivelli 2. september.
Olís-deild karla Afturelding Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira