Gary Martin tryggði Selfoss sigur á Þór Atli Arason skrifar 10. ágúst 2022 19:00 Martin skoraði sigurmark Selfoss gegn Þór. sunnlenska.is/Guðmundur Karl Tvö rauð spjöld fóru á loft og þrjú mörk voru skoruð þegar Selfoss vann 2-1 endurkomusigur á heimavelli gegn Þór í Lengjudeildinni í dag.
Harley Willard kom Þórsurum yfir strax í upphafi leiks þegar hann skoraði fyrsta mark leiksins eftir rétt rúmar 20 sekúndur. Heimamenn voru þó búnir að jafna leikinn u.þ.b. korteri seinna. Gonzalo Zamorano vann þá vítaspyrnu sem Hrvoje Tokic tók og skoraði úr af miklu öryggi. Þegar 35. mínútur voru komnar á klukkuna braut Hermann Helgi Rúnarsson á Tokic sem var þá sloppinn einn í gegn og Hermann fékk réttilega rautt spjald í kjölfarið. Selfyssingar nýttu sér liðsmuninn á 62. mínútu þegar Gary Martin skoraði það sem reyndist vera sigurmark leiksins eftir stoðsendingu frá Stefáni Þór Ágústssyni, markverði Selfoss. Á 90. mínútu fékk Jón Vignir Pétursson, leikmaður Selfoss, sitt seinna gula spjald og þar með rautt en fyrra gula spjaldið fékk Jón einungis átta mínútum áður. Með sigrinum fer Selfoss upp í þriðja sæti deildarinnar með 25 stig, níu stigum á eftir toppliði HK. Þór er hins vegar áfram í áttunda sæti með 20 stig, níu stigum frá fallsvæðinu. Bæði lið hafa nú leikið 16 af 22 leikjum deildarinnar. Upplýsingar um markaskorara og gang leiks kemur frá Fotbolti.net.
Lengjudeild karla UMF Selfoss Þór Akureyri Mest lesið Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Luke Littler grét eftir leik Sport Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Fótbolti Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Íslenski boltinn Jackson komst upp fyrir Eið Smára Enski boltinn Lengi getur vont versnað hjá Man. City Enski boltinn „Ég er ekki búin að kaupa eina einustu jólagjöf“ Sport Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Enski boltinn Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Fótbolti Fleiri fréttir Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Messi með eigin treyjur upp um alla veggi á heimilinu Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Sjá meira