Að raunvirði hefur veltan einungis mælst hærri í tveimur mánuðum frá upphafi mælinga, í júlí og ágúst árið 2018. Þetta sýna nýjar tölur Rannsóknarseturs verslunarinnar.
Ferðamenn frá Bandaríkjunum voru ábyrgir fyrir 35,4 prósentum af allri erlendri kortaveltu hérlendis í júlí. Þjóðverjar komu næstir með 7,9 prósent og svo Frakkar með 5,2 prósent.
Heildarvelta greiðslukorta í júlí var rúmir 125 milljarðar króna og jókst um 15 prósent á milli ára miðað við breytilegt verðlag.
Heildar kortavelta Íslendinga hérlendis nam tæpum 89,8 milljörðum króna og jókst um 4,52 prósent á milli ára miðað við breytilegt verðlag. Innlend kortavelta í verslun nam tæpum 48 milljörðum sem er 0,85 prósentum meira en á sama tíma í fyrra miðað við breytilegt verðlag.
Innlend kortavelta í verslun á netinu nam tæpum 3 milljörðum og jókst hún um tæp 21,7 prósent á milli ára miðað við breytilegt verðlag.
Heildar velta innlendra greiðslukorta í verslunum og þjónustu erlendis nam rúmum 25,3 milljörðum króna í og hefur aftur ekki verið hærri frá upphafi mælinga árið 1997.