„Naut þess mikið að vinna með Aubameyang hjá Dortmund“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 13. ágúst 2022 07:01 Eintracht Frankfurt v Borussia Dortmund - DFB Cup Final 2017 BERLIN, GERMANY - MAY 27: Pierre-Emerick Aubameyang of Dortmund and Head coach Thomas Tuchel of Dortmund celebrates after winning g the DFB Cup final match between Eintracht Frankfurt and Borussia Dortmund at Olympiastadion on May 27, 2017 in Berlin, Germany. (Photo by TF-Images/Getty Images) Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Chelsea, segist alltaf hafa átt náið samband við framherjann Pierre-Emerick Aubameyang eftir að hafa unnið með honum hjá Dortmund.
Aubameyang gekk í raðir Barcelona frá Arsenal í febrúar á þessu ári eftir að hafa lent uppi á kant við Mikel Arteta, knattspyrnustjóra Lundúnaliðsins. Hann hefur nú verið orðaður við endurkomu í ensku úrvalsdeildina undanfarna daga og þar hefur Chelsea verið nefnt til sögunnar sem liðið sem hann gæti farið í. Á blaðamannafundi í gær fyrir leik Chelsea gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á morgun vildi Tuchel ekki tjá sig um mögulega komu framherjans til liðsins, en sagðist þó alltaf hafa notið þess að vinna með honum. „Það voru aldrei nein vandræði í kringum hann hjá mér,“ sagði Tuchel. „Þetta er alveg óskylt þeim sögusögnum sem eru í gangi núna, en ég naut þess mikið að vinna með Aubameyang þegar ég var hjá Dortmund. Sumir leikmenn verða alltaf þínir leikmenn af því að þú átt náið samband við þá og hann er einn af þeim leikmönnum.“ Aubameyang gekk í raðir Arsenal í janúar 2018 fyrir 56 milljónir punda, en yfirgaf félagið á frjálsri sölu eftir að hafa misst fyrirliðabandið sökum slæmrar hegðunnar. „Hjá Dortmund var aldrei neitt vandamál,“ bætti Tuchel við um framherjann að lokum.
Enski boltinn Mest lesið Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ Handbolti Leikbann Kudus lengt í fimm leiki Enski boltinn „Langar að svara fyrir okkur“ Fótbolti „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ Handbolti Aftur skutu Skytturnar púðurskotum á Ítalíu Fótbolti Atlético Madríd stal sigrinum í París Fótbolti Tommi með Nablann í bandi í Keflavík Körfubolti Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Handbolti Vandræði Madríd halda áfram Fótbolti Var í fjórða flokki þegar hann stýrði inni á æfingu meistaraflokks Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leikbann Kudus lengt í fimm leiki Bernardo Silva: Man City er á dimmum stað Amorim: Pep Guardiola er svo miklu betri en ég akkúrat núna Afar vandræðaleg samskipti Amorims og blaðamanns „Myndu halda að ég væri nýr Ferguson“ Íslandshrellir bjargaði Fulham með ótrúlegum hætti Meiddur Ödegaard gifti sig í leyni Skoraði stórglæsilegt mark og ætlar að horfa á það aftur og aftur Edu yfirgefur Arsenal Liverpool-stjarnan slapp með skrekkinn Skilur ekki hvernig Lisandro Martínez slapp við rauða spjaldið Dulin skilaboð frá Mo Salah eftir leik helgarinnar Kennir sjálfum sér um uppsögnina Fyrsta mark Fernandes dugði til stigs gegn Chelsea Willum skoraði sigurmarkið í fyrstu umferð FA bikarsins Tottenham skoraði fjögur mörk í seinni hálfleik eftir að hafa lent undir „Ég held að við getum orðið enn betri“ Jafnt eftir markaveislu í mikilvægum slag á fallsvæðinu Guðlaugur Victor horfði þrisvar á eftir boltanum í netið gegn Leeds Nottingham Forest í þriðja sæti og Southampton með fyrsta sigurinn Bournemouth slapp með sigur eftir stangarskot í uppbótartíma Toppsætið tryggt með tveimur mörkum á tveimur mínútum Of ungur fyrir Man. Utd að mati Hareide Svíinn sá um Arsenal með frábærum skalla Sky segir Liverpool með tvo í sigtinu sem arftaka Salah Gary Martin búinn að finna sér nýtt lið „Passar fullkomlega við svona félag“ Man. Utd kynnir nýja stjórann til leiks Ten Hag niðurbrotinn þrátt fyrir milljarðana Jürgen Klopp enn fúll út í Sergio Ramos Sjá meira