Lífið

Minnast kímni drottningarinnar

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Hér má sjá mannfjöldann horfa á atriði drottningarinnar og Paddington fyrir framan Buckingham-höll í maí.
Hér má sjá mannfjöldann horfa á atriði drottningarinnar og Paddington fyrir framan Buckingham-höll í maí. Getty/Victoria Jones/PA Images

Heimurinn allur minnist nú Elísabetar II Bretlandsdrottningar sem lést í gær 96 ára að aldri. Það eru ekki einungis minningar af opinberum störfum Elísabetar sem fólk yljar sér við um þessar mundir heldur minnist fólk einnig kímni drottningarinnar.

Teiknimyndabjörninn Paddington sendi sína hinstu kveðju til Elísabetar á Twitter eftir að fréttir bárust af andláti hennar síðdegis í gær. Paddington átti stórt hlutverk í hátíðarhöldunum vegna platínum krýningarafmælis drottningarinnar í maí síðastliðnum.

Í myndefninu sem tekið var upp í tilefni af hátíðarhöldunum má sjá Paddington ganga gegn kurteisisreglum sem ber að hafa í huga í kringum kóngafólk. Hann svolgrar te og sprautar rjóma út um allt. Sem betur fer er drottningin skilningsrík. Myndbandið má sjá hér að neðan.

Það eru þó ekki einungis teiknimyndapersónur sem drottningin hefur unnið með á þennan máta heldur einnig njósnurum, þá nánar til tekið njósnaranum breska, James Bond. Samstarf drottningarinnar og Bond var tekið upp í tilefni Ólympíuleikanna sem voru haldnir fyrir 10 árum síðan í London. 

Brot úr myndbandinu með Bond, skemmtilegt spjall á milli drottningarinnar og David Attenborough ásamt fleiri skondnum augnablikum má sjá í samantekt Guardian hér að neðan. 


Tengdar fréttir

Stjörnurnar minnast drottningarinnar

Stjörnurnar senda fallegar kveðjur til konungsfjölskyldunnar eftir að drottningin kvaddi þennan heim í gær. Elísabet II Bret­lands­drottning var 96 ára gömul þegar hún lést í Balmoral í Skotlandi. Heimurinn fygdist með þegar fjölskyldumeðlimir komu sér þangað til að vera við hlið hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.