Tónlist

Eplið fellur ekki langt frá eikinni hjá Sin­fóníu­hljóm­sveitinni

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
T.v. Pör foreldra og barna innan Sinfóníuhljómsveitarinnar sem spila saman í kvöld. T.h. Af tónleikum hljómsveitarinnar frá 2019.
T.v. Pör foreldra og barna innan Sinfóníuhljómsveitarinnar sem spila saman í kvöld. T.h. Af tónleikum hljómsveitarinnar frá 2019. Facebook/Svava Bernharðsdóttir, Vísir/Vilhelm.

Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld munu fimm pör foreldra og barna spila saman ásamt fleirum. Svava Bernharðsdóttir víóluleikari segir Sinfóníuhljómsveitina vera stóra fjölskyldu.

Í samtali við fréttastofu segir Svava börnin í hópnum koma alls staðar að til þess að spila með hljómsveitinni, til dæmis frá Bandaríkjunum og Þýskalandi.

Hún segir óvenju mikið af pörum barna og foreldra spila saman í kvöld en það hefðu getað verið tvö í viðbót. Eplið falli sjaldan langt frá eikinni.

Aðspurð hvort þetta skapi ekki skemmtilega stemmingu innan sveitarinnar svarar Svava því játandi og lýsir henni sem stórfjölskyldu. Hljómsveitin sé dugleg að gera margt saman, til dæmis grilla eftir hestaferðir og hreyfa sig.

„Það er starfandi eitthvað sem kallast Sinfó-fit, það er cross-fit tvisvar í viku eftir æfingu og svo er starfandi gönguhópur og hlaupahópur og ýmislegt slíkt,“ segir Svava.

Hún segir hljómsveitarmeðlimi alltaf tilheyra hópnum.

„Þó þú sért ekki alltaf daglegur gestur á sviðinu þá tilheyrirðu þessu batteríi, kemur annað slagið og ert búinn að fylgjast að frá æsku yfirleitt,“ segir Svava.

Í kvöld spilar Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu með söngkonunni Dísellu Lárusdóttur undir stjórn hljómsveitarstjórans David Danzmayr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.