Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-Þór/KA 1-3 | Þór/KA tók risaskref í átt að áframhaldandi veru í Bestu deildinni Andri Már Eggertsson skrifar 18. september 2022 16:32 Vísir/Hulda Margrét Þór/KA fór langt með að halda sér í deildinni með 1-3 sigri á Keflavík. Leikurinn fór rólega af stað en um leið og Þór/KA komst á bragðið fór boltinn að rúlla sem skilaði þremur mörkum. Keflavík minnkaði muninn í 1-3 en nær komust Keflvíkingar ekki og Þór/KA fékk mikilvæg þrjú stig í pokann. Fyrstu fjörutíu mínúturnar í fyrri hálfleik voru heldur tíðindalitlar. Bæði lið sköpuðu sér lítið sem ekkert af færum. Hættulegustu sóknirnar komu í gegnum föst leikatriði. Snædís María Jörundsdóttir átti hættulegasta færi Keflavíkur á 11. mínútu. Dröfn átti góða fyrirgjöf á hausinn hennar Snædísar en þrátt fyrir að vera nálægt markinu var skallinn ansi kraftlaus og beint á Hörpu Jóhannesdóttur, markvörð Þór/KA. Gestirnir fengu einnig tækifæri á að skora með kollspyrnu. Hulda Ósk Jónsdóttir tók hornspyrnu sem var hnitmiðuð inn í teiginn og þar náði Arna Eiríksdóttir hörkuskalla sem fór rétt framhjá markinu. Eins og þruma úr heiðskíru kom Margrét Árnadóttir gestunum frá Akureyri yfir á 41. mínútu. Silvia Leonessi átti skelfilega sendingu til baka sem átti að fara á markmann en Margrét komst auðveldlega inn í hana og potaði boltanum framhjá Hörpu og skoraði í autt markið. Rétt áður en flautað var til hálfleiks bætti Ísfold Marý Sigtryggsdóttir við öðru marki Þór/KA. Andrea Mist tók hornspyrnu á nærstöngina þar sem Sandra María gerði frábærlega í að skalla boltann út í teiginn og þar kom Ísfold á ferðinni og lúðraði boltanum í markið. Eftir fjörutíu mínútur af engu voru gestirnir frá Akureyri tveimur mörkum yfir í hálfleik. Hulda Ósk Jónsdóttir bætti við þriðja marki Þór/KA þegar aðeins þrjár mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Það var mikill barningur í teignum eftir hornspyrnu. Boltinn hrökk af varnarmanni Keflavíkur beint á Huldu sem skoraði af stuttu færi. Heimakonur minnkuðu muninn á 67. mínútu. Tina Marolt tók hornspyrnu þar sem boltinn fór í slána og í mikilli traffík náði Caroline Mc Cue Van Slambrouck að skófla boltanum yfir línuna. Fleiri uðu mörkin ekki og Þór/KA vann 1-3 sigur. Af hverju vann Þór/KA Eftir fjörutíu mínútur af engu komst Þór/KA á bragðið eftir klaufaleg mistök heimakvenna sem endaði með marki. Fyrsta markið kveikti heldur betur á norðan konum þar sem Þór/KA skoraði annað mark undir lok fyrri hálfleiks og þriðja markið í byrjun seinni hálfleiks. Hverjar stóðu upp úr? Annað mark Þórs/KA var í dýrari kantinum. Sandra María Jessen var nánast alveg upp að endalínu nálægt nærstönginni þar skallaði hún boltann út í teiginn þar sem Ísfold Marý mætti á ferðinni og dúndraði boltanum í markið. Þór/KA nýtti föstu leikatriðin vel og komu tvö af þremur mörkum Þórs/KA upp úr hornspyrnu. Hvað gekk illa? Silvia Leonessi, leikmaður Keflavíkur, gaf Þór/KA fyrsta markið þegar hún átti ömurlega sendingu á markmann sem Margrét Árnadóttir komst inn í og skoraði. Þór/KA fylgdi þessu eftir með tveimur mörkum og þá var leikurinn gott sem búinn. Hvað gerist næst? Þór/KA fær Stjörnuna í heimsókn næsta sunnudag klukkan 14:00. Á sama tíma fer Keflavík til Vestmannaeyja og mætir ÍBV. Gunnar: Það kraumar inni í mér Gunnar Magnús var svekktur eftir leikvísir/vilhelm Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Keflavíkur, var hundfúll með sitt lið eftir leik. „Það kraumar inni í mér. Við lögðum mikla áherslu á að mæta rétt inn í leikinn. Í síðasta leik var mikil vinnusemi og dugnaður en ekki í dag. Það er einhver grýla þegar við fáum lið í kringum okkur á okkar heimavöll. Við höfum tapað fyrir Aftureldingu, KR og Þór/KA með fullri virðingu fyrir þeim liðum,“ sagði Gunnar og hélt áfram. „Á mikilvægu augnabliki gáfum við þeim ódýrt mark. Það var ekkert að gerast í leiknum áður en við gáfum þeim mark og það var algjört kjaftshögg að fá svona mark á sig.“ Gunnar var svekktur með að hafa fengið á sig tvö mörk eftir hornspyrnu sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir. „Það var súrt að fá á sig tvö mörk upp úr hornspyrnu en mér fannst við klára leikinn ágætlega svo ég hrósi mínu liði,“ sagði Gunnar að lokum. Besta deild kvenna Keflavík ÍF Þór Akureyri KA
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti