Stjórn Keflavíkur sendir frá sér yfirlýsingu Stjórn körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að fyrir löngu hafi verið vitað að aðalþjálfari kvennaliðs félagsins, Hörður Axel Vilhjálmsson, yrði á Tenerife síðustu dagana fyrir fyrsta leik liðsins í úrslitakeppni deildarinnar. Um fjarveru hans hafi verið samið á sínum tíma. Körfubolti 1.4.2026 15:04
Þjálfarinn á Tene degi fyrir leik í úrslitakeppni: „Ég væri brjáluð“ Sérfræðingar Körfuboltakvölds ráku upp stór augu er þær fréttu af því að Hörður Axel Vilhjálmsson, þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í körfubolta, hefði verið staddur á Tenerife degi fyrir mikilvægan leik liðsins í úrslitakeppni Bónus deildarinnar gegn KR. Körfubolti 1.4.2026 08:00
Uppgjörið KR - Keflavík 85-69 | KR-ingar voru feti framar allan leikinn og innbyrtu sigur KR bar sigurorð af Keflavík, 85-69, þegar liðin áttust við í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta að Meistaravöllum í kvöld. Körfubolti 31.3.2026 18:46
Keflavíkurkonur skutu Stjörnuna á kaf og þessi lið mætast í úrslitakeppninni Körfubolti 25.3.2026 20:52
Gæti orðið einvígi á milli Njarðvíkur og Keflavíkur í fyrstu umferð Lokaumferð deildarkeppni Bónusdeildar kvenna í körfubolta fer fram í kvöld og stórleikur kvöldsins er án efa óopinber úrslitaleikur á milli Hauka og KR um deildarmeistaratitilinn. Það er líka barist um önnur sæti. Körfubolti 25. mars 2026 11:02
Hamar/Þór - Keflavík 88-85 | Keflavík fékk Hamarshögg í Þorlákshöfn Hamar/Þór vann Keflavík í fjörugum leik í Bónus-deild kvenna í körfubolta. Hamar/Þór hefur verið í botnbaráttu bróðurpartinn af tímabilinu á meðan Keflvíkingar hafa verið staðsettir fyrir ofan miðja deild. Lokatölur í dag 88-85 Hamar/Þór í vil. Körfubolti 21. mars 2026 19:32
Uppgjörið:Keflavík - Valur 85-88| Valur tryggði heimaleikjaréttinn í fyrstu umferð Keflavík og Valur hafa bæði verið að hökta nú þegar aðeins tvær umferðir eru eftir af Bónus-deild karla í körfubolta. Körfubolti 19. mars 2026 21:55
Ræddu umtalaða sigurkörfu KR: „Þetta er rosalega heimskulegt“ Umtöluð sigurkarfa KR gegn Keflavík í Bónus deild karla var til umræðu í Bónus Körfuboltakvöldi í gær. Magnús Þór Gunnarsson skilur ekki hvað leikmanni Keflavíkur, Mirza Bulic, gekk til þegar hann sló í boltann eftir skot Toms Elvis Leimanis. Körfubolti 14. mars 2026 13:40
KR - Keflavík 107-105 | Keflvíkingar gáfu frá sér fimmta sætið KR tók á móti Keflavík í 20. umferð Bónusdeildar karla í körfubolta nú í kvöld. Um sannkallaðan spennutrylli var að ræða þar sem úrslitin réðust á lokasekúndu leiksins. Körfubolti 12. mars 2026 23:00
Sindri út til Guðrúnar og kveður Keflavík Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur nú staðfest brotthvarf markvarðarins Sindra Kristins Ólafssonar sem ákveðið hefur að flytja út til Svíþjóðar til unnustu sinnar, landsliðskonunnar Guðrúnar Arnardóttur. Fótbolti 11. mars 2026 17:34
„Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Keflavík gerði stór mistök með því að láta Darryl Morsell fara frá liðinu fyrir Remy Martin, að mati sérfræðinga Bónus Körfuboltakvölds. Körfubolti 8. mars 2026 12:19
Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Skömmu eftir að hafa komið að láni frá Íslandsmeisturum Víkings skoraði miðvörðurinn Davíð Helgi Aronsson tvö mörk fyrir Keflavík í kvöld, í sigri gegn Fram í Lengjubikarnum í fótbolta. Íslenski boltinn 6. mars 2026 21:11
Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Eftir að hafa tapað síðustu tveimur leikjum eru Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut. Leikurinn endaði með tíu stiga sigri Keflavíkur í Kaldalóns-höllinni 96-106. Körfubolti 6. mars 2026 20:58
Stjarnan kláraði Ármann snemma en Stólarnir stóðu í Keflavík Tveir leikir fóru fram í neðri hluta Bónus deildar kvenna í kvöld. Stjarnan vann öruggan sigur gegn Ármanni, sem minnkaði muninn undir lok leiks niður í 83-88. Keflavík hélt Tindastóli frá sér og fagnaði tíu stiga 77-67 sigri. Körfubolti 4. mars 2026 21:15
Keflavík fær víking að láni „Ég hef heyrt að Keflavík sé mjög faglegur klúbbur og það var erfitt að spila á móti þeim í fyrra. Ég hef mjög mikla trú á verkefninu,” segir Davíð Helgi Aronsson sem genginn er til liðs við Keflvíkinga. Íslenski boltinn 1. mars 2026 15:04
Á íslenska konu og barn en mætir Íslandi í kvöld Mindaugas Kacinas, fyrrverandi leikmaður Keflavíkur, spilar sinn fyrsta A-landsleik fyrir Litháen þegar liðið mætir Íslandi í körfubolta í Laugardalshöll í kvöld. Körfubolti 27. febrúar 2026 11:57
Bikarmeistarablús í Höllinni í boði Ármenninga Ármann byrjar frábærlega í neðri hluta Bónusdeildar kvenna í körfubolta því liðið vann óvæntan níu stiga sigur á bikarmeisturum Keflavíkur í kvöld, 84-75. Körfubolti 24. febrúar 2026 20:54
Var rekinn en hefndi sín: „Hefði verið búið að berja hann í spað“ Darryl Morsell hefndi sín á sínum gömlu vinnuveitendum í Keflavík í leik liðsins gegn ÍA í Bónus deildinni í körfubolta á dögunum. Morsell var rekinn frá Keflavík en átti stórleik fyrir ÍA gegn sínu gamla liði. Rætt var um frammistöðu hans í Körfuboltakvöldi á Sýn Sport Ísland. Körfubolti 22. febrúar 2026 11:33
„Héldum leikplaninu þangað til í lokin“ Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, var sáttur við spilamennskuna að flestu leyti þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Stjörnunni á sárgrætilegan hátt í kvöld. Það hafi hins vegar vantað upp á klókindi þegar mest á reyndi undir lokin. Körfubolti 20. febrúar 2026 22:02
Uppgjör: ÍA-Keflavík 97-96 | Skagamenn enduðu níu leikja taphrinu Skagamenn unnu langþráðan sigur í Bónus-deild karla í kvöld þegar liðið fékk Keflavík í heimsókn í AvAir höllina á Akranesi. Leikurinn sveiflaðist fram og aftur en heimamenn unnu að lokum eins stigs sigur, 97-96. Körfubolti 19. febrúar 2026 20:55
Uppgjörið: Keflavík-Grindavík 94-86 | Tviburasystur í stuði og engin hefnd Bikarmeistarar Keflavíkur unnu Grindvíkinga í kvöld aðeins einni og hálfri viku eftir að Keflavík hafði betur á móti Grindavík í bikarúrslitaleiknum. Körfubolti 18. febrúar 2026 20:54
Birna fékk skelfilegar fréttir og þarf að hætta Körfuboltakonan Birna Valgerður Benónýsdóttir hefur neyðst til þess að leggja skóna á hilluna, aðeins 25 ára gömul, og kveðst þurfa tíma til að jafna sig á þessu mikla áfalli. Hún ætlar þó ekki að útiloka að spila aftur í framtíðinni. Körfubolti 14. febrúar 2026 18:43
Keflavík og HK á sigurbraut Keflavík og HK unnu bæði leiki sína í Lengjubikar karla í fótbolta í hádeginu. Bæði eru því komin á sigurbraut í A-riðli keppninnar. Íslenski boltinn 14. febrúar 2026 14:03
Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 99-105 | Grindavík styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar Grindavík sigraði Keflavík í hörku spennandi Suðurnesjaslag í kvöld, 99-105. Leikurinn var að mestu leyti jafn milli liðanna en afhroð í öðrum leikhluta varð Keflavík að falli. Körfubolti 13. febrúar 2026 19:01
„Þetta ætti að smella bara eins og flís við rass“ Jóhann Þór Ólafsson stefnir á að stýra toppliði Grindavíkur til sigurs í heimsókninni til Keflavíkur í 17. umferð Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld. Þjálfarinn segir nýja/gamla leikstjórnandann Jeremy Pargo eiga eftir að smella við liðið eins og flís við rass. Körfubolti 13. febrúar 2026 14:48
Sjáðu slagsmálin í Grindavík: Stuðningsmenn stukku út á gólf og lögreglan skarst í leikinn Körfubolti