Erlent

Skýrasta myndin af Neptúnusi í þrjátíu ár

Kjartan Kjartansson skrifar
Mynd JWST af Neptúnusi og tunglum hans. Tríton af bjarta fyrirbærið uppi vinstra megin.
Mynd JWST af Neptúnusi og tunglum hans. Tríton af bjarta fyrirbærið uppi vinstra megin. NASA, ESA, CSA, STScI

Ekki frá því að könnunarfarið Voyager 2 flaug fram hjá fyrir meira en þrjátíu árum hafa menn fengið eins skarpa mynd af ísrisanum Neptúnusi og James Webb-geimsjónaukinn náði nýlega af honum. Hringir plánetunnar og stærstu tungl eru greinileg á myndinni.

Myndin sem geimstofnanirnar þrjár sem standa að JWST birtu í dag var tekin með NIRCam-myndavél sjónaukans sem er næm fyrir nærinnrauðu ljósi. Þessi ysta reikistjarna í sólkerfinu okkar er að miklu leyti úr gróðurhúsalofttegundunni metani sem gleypir í sig stóran hluta varmageislunar hennar. Því virkar pláneta fremur dökkleit á mynd sjónaukans fyrir utan háský úr metanís sem endurvarpa sólarljósi. Þau sjást sem bjartar rákir og blettir á yfirborði hnattarins á myndinni.

Þó að þeir fölni í samanburði við Satúrnus sjást íshringir Neptúnusar skýrt á myndinni og sömuleiðis daufari rykbelti.

Sjö af fjórtán þekktum tunglum Neptúnusar má einnig merkja á nýju myndinni. Langbjartast þeirra er stærsta tunglið Tríton. Hann er þakinn köfnunarefnisís sem endurvarpar um 70% af öllu sólarljósi sem fellur á yfirborð tunglsins.

Mynd JWST af Neptúnusi með heitum helstu tungla sem sjást á henni.NASA, ESA, CSA, STScI

Tríton er óvanalegt tungl að því leyti að sporbraut þess er öfug miðað við snúning Neptúnusar um sjálfan sig. Það bendir til þess að tunglið hafi ekki myndast með reikistjörnunni. Tilgáta stjörnufræðinga er að Tríton hafi upphaflega verið hluti af Kuiperbeltinu en Neptúnus hafi síðar fangað hann með þyngdarkrafti sínum.

Á Stjörnufræðivefnum kemur fram að einn daginn muni Tríton splundrast og mynda íshring utan um Neptúnus.


Tengdar fréttir

Uppgötvuðu elstu stjörnu­þoku sem hefur sést

James Webb-geimsjónaukinn náði nýverið mynd af stjörnuþokunni GLASS-z13 sem er 13,5 milljarða gömul og þar af leiðandi elsta stjörnuþoka sem hefur verið uppgötvuð til þessa.

Sýndu mátt James Webb geimsjónaukans

Geimvísindastofnanir Bandaríkjanna, Evrópu og Kanada birtu í dag nýjar myndir úr James Webb geimsjónaukanum (JWST). Fyrsta myndin var opinberuð í gær en sjónaukinn er sá stærsti og besti sem hefur verið smíðaður og er talinn munu gjörbreyta stjarnvísindum á komandi árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×