Starfsánægja: Vandinn vex þegar „hveitibrauðsdögunum“ er lokið Rakel Sveinsdóttir skrifar 23. september 2022 07:00 Sambandið við yfirmanninn er það atriði sem skiptir starfsfólk mestu máli þegar spurt er um starfsánægju og almennt skora smærri vinnustaðir hærra í ánægju en stærri. Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Moodup sem stóð fyrir könnunum, segir líka athyglisvert að starfsánægja minnkar fljótlega eftir að hveitibrauðsdögum nýrrar vinnu er lokið. Vísir/Vilhelm Flestir starfsmenn eru ánægðir í starfinu sínu og það á þá helst við um smærri fyrirtæki. Sambandið við yfirmanninn skiptir mestu máli þegar spurt er um starfsánægju og margir vinnustaðir eiga erfitt með að halda starfsfólki ánægðu eftir að nýjabrumið í nýju starfi er farið.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í niðurstöðum kannana Moodup sem fram fóru á tólf mánaða tímabili, frá 1.september 2021 til 31.ágúst 2022. „Það kom mér mest á óvart hvað starfsánægja lækkar mikið eftir tvö til þrjú ár í starfi. Fyrirfram hélt ég að starfsánægja myndi aukast samhliða vaxandi starfsaldri, en fyrstu árin er þróunin þveröfug,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson framkvæmdastjóri Moodup meðal annars um niðurstöðurnar. Atvinnugrein og fjöldi starfsmanna á vinnustaðnum skipta máli þegar spurt er um starfsánægju. Sextán þúsund manns tóku þátt í könnunum Moodup sem fóru fram á tólf mánaða tímabili. Starfsánægja mældist lægri hjá fólki í framlínustörfum en þó með einni undantekningu: Í ferðaþjónustunni.Vísir/Moodup Persónuleg samskipti með mikla vigt Sextán þúsund starfsmenn svöruðu könnunum Moodup á umræddu tólf mánaða tímabili, en sá fjöldi nemur um 7% starfsfólks á landinu öllu. Í flestum tilfellum var fólk beðið um að svara með einkunnagjöf á mælistikunni 0-10, þar sem 0 er lægsta endurgjöf en 10 besta endurgjöfin. Athygli vekur að fólk sem starfar á smærri vinnustöðum mælist almennt ánægðara í starfi en fólk sem starfar á stærri vinnustöðum. Þá er athyglisvert að það atriði sem vegur hvað mest þegar spurt er um starfsánægju, er samband fólks við yfirmann sinn. Starfsfólk er almennt mjög jákvætt gagnvart beinum yfirmönnum sínum sem og nánasta samstarfsfólki. Hins vegar er útkoman verri þegar kemur að almennari þáttum eins og framþróun í starfi, streitu og viðurkenningu,“ segir Björn. Þá segir hann viðhorf fólks gagnvart þeim sem það vinnur náið með almennt jákvæðara en gagnvart vinnustaðnum í heild sinni. „Persónuleg samskipti hafa því almennt jákvæð áhrif á starfsánægju, en ópersónulegri þættir í starfsumhverfinu geta togað hana niður.“ Mjög athyglisvert er að sjá að af þeim atriðum sem skipta starfsfólk mestu máli þegar spurt er um starfsánægju er sambandið þeirra við yfirmanninn. Hér má sjá brot af þeim athugasemdum sem fólk skrifaði með svörum sínum.Vísir/Moodup Svörin jafngilda þremur reyfurum Kannanirnar sem niðurstöður Moodup byggja á voru margar og svaraði hver starfsmaður að meðaltali 3,5 könnunum. Svörin voru alls þrjú hundruð þúsund og starfsfólk skrifaði um tíu þúsund athugasemdir með svörunum. Að sögn Björns jafngilda þær athugasemdir þremur reyfurum miðað við orðafjölda. Ýmislegt mátti lesa úr þessum athugasemdum. Til dæmis: „Ég er ánægð með sveigjanleika fyrir fjarvinnu, í takt við nýja og breytta tíma“ Eða „Vera meira í sambandi við fólkið á gólfinu, t.d. með viðburðum, fundum og samþjöppun.“ Þegar búið var að rýna í þessar athugasemdir segir Björn að hægt hafi verið að draga þær saman í átta þemur: Upplýsingaflæði Álag og streita Þjálfun og fræðsla Vaktarfyrirkomulag Launakjör Yfirmenn Skipulag Aðbúnað Meðal athugasemda varðandi upplýsingaflæði má til dæmis nefna: „Finnst mikið uppá vanta að stjórnendur komi upplýsingum sem tengjast starfinu til skila.“ „Upplýsingaflæði almennt mætti vera mun betra. “ Þegar kom að launum mátti til dæmis sjá athugasemdir eins og: „Miðað við magn af vinnu þá eru launin frekar lág. “ „Ánægð međ allt, laun geta veriđ ađeins betri. “ Um álag eða yfirmenn: „Álagið er í hæðstu hæðum núna. Er alveg við það að bogna. “ „Passa þarf upp á álag á lykilfólki, það er dýrt að missa það. “ „Samskipti við yfirmenn eru næstum engin. “ „Yfirmaður mætti hlusta betur. “ „Æðstu yfirmenn ættu að koma oftar í heimsókn til þeirra sem vinna dagleg verkefni. “ Svör starfsfólks í könnunum Moodup voru alls þrjúhundruð þúsund talsins enda svarendur um 7% alls starfsfólks á landinu. Á mynd má sjá Björn á tali við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra,Vísir/Vilhelm Vandinn eykst eftir hveitbrauðsdagana Starfsfólk valdi á hvaða tungumáli það svaraði spurningum og sýna niðurstöður að fólk sem svaraði á pólsku gefur almennt lægri einkunn. Ferðaþjónustan virðist skera sig nokkuð úr. Því almennt skora atvinnugreinar lægra eftir því sem hlutfall framlínufólks hækkar. Að undanskildri ferðaþjónustunni. Eitt af því sem Birni sjálfum fannst mjög athyglisvert að sjá í niðurstöðum er hvernig starfsánægja þróast miðað við starfsaldur. Því þar sýna niðurstöður að fólk er ánægðast þegar það er frekar nýbyrjað í starfi eða hefur unnið mjög lengi á sama stað. Lágpunkturinn er við tveggja til þriggja ára starfsreynslu. Eftir eitt til tvö ár er „hveitibrauðsdögunum“ lokið og starfsfólk er líklegra til að upplifa stöðnun,“ segir Björn. Niðurstöður Moodup voru kynntar á fjölmennum morgunfundi á Grand Hótel á dögunum. Fundurinn var haldinn í samstarfi við Líf og sál sálfræði- og ráðgjafaþjónustu og Mannauð, félags mannauðsfólks á Íslandi. Erindi héldu Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Moodup, og Þórkatla Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Líf & sál. Húsfyllir var á fundinum og segir Björn að sumir hafi hreinlega þurft frá að hverfa. Húsfyllir var á fundinum þar sem niðurstöður Moodup voru kynntar. Fundurinn var haldinn í samstarfi við Líf og sál sálfræði- og ráðgjafaþjónustu og Mannauð, félags mannauðsfólks á Íslandi.Vísir/Moodup
Vinnustaðurinn Vinnustaðamenning Stjórnun Vinnumarkaður Mannauðsmál Tengdar fréttir Stóra uppsögnin: Ljóst að atvinnulífið er meðvitað um gjörbreyttar áherslur Það er ljóst að forkólfar íslensks atvinnulífs eru meðvitaðir um gjörbreytt landslag á vinnumarkaði þar sem nýjar kynslóðir X og Z eru að koma inn með ný viðhorf og heimsfaraldur hefur flýtt fyrir þróun fjarvinnu í takt við kröfur fólks um aukinn sveigjanleika í starfi. 18. maí 2022 07:00 Stóra uppsögnin: Fólk þarf að langa að vera í vinnunni Á Viðskiptaþinginu 2022 sem haldið er á Alþjóðlega mannauðsdeginum föstudaginn 20.maí næstkomandi, er sjónunum beint að mannauðsmálum. Enda telja ríflega 40% stjórnenda í 400 stærstu fyrirtækjum á Íslandi að skortur verði á vinnuafli á næstunni. 16. maí 2022 07:00 Starfsfólki tryggt aðgengi að sálfræðingum með lágmarksbiðtíma Það á að vera gaman í vinnunni, sveigjanleikinn á að vera mikill, jafnrétti, fjölbreytileiki og síðast en ekki síst góð andleg heilsa. 20. júní 2022 07:01 „Þá segir Jói: Veistu, þetta er mesta snilld sem ég hef heyrt!“ „Ég man þegar að við tókum við rekstri Rush Trampólín garðsins að þá var eitt það fyrsta sem starfsfólkið spurði okkur „Þýðir það þá að við fáum Pétur Jóhann til okkar líka?““ segir Jóhannes Ásbjörnsson einn eigenda Gleðipinna um hversu vel starf Péturs Jóhanns Sigfússonar í hlutverki Móralska er að mælast hjá starfsfólki. 16. september 2022 07:01 Bjóða starfsfólki svefnráðgjöf og skoða hagræðingar á vinnutíma Svefnráðgjöf, námskeið og fleira er liður í innleiðingu Samkaupa á svefnstjórnun til að auka á vellíðan starfsfólks. 5. maí 2022 07:01 Mest lesið „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ Atvinnulíf „En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ Viðskipti innlent Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Viðskipti erlent Eini sjö sæta rafbíllinn í sínum verðflokki Samstarf KS við það að kaupa B. Jensen Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Atvinnulíf Vonar að íslenskir verktakar hafi enn áhuga á Grænlandi Viðskipti innlent Kynna nýja samheitaorðbók sem samin er með hjálp gervigreindar Viðskipti innlent Níu varðhundar neytenda sameinast á einum vef Neytendur Fleiri fréttir „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Stærðin skiptir ekki máli Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Allt í steik: Samtalið við yfirmanninn „Okkur langar til að búa til nýja tegund af bjórmenningu“ „Eitthvað við kvöldin og nóttina sem ég heillast af“ Dýrara að gera ekkert: „Erum öll að pissa í sömu laugina“ Úrelt kerfi: „Síðan kom bara einhver bíll og tæmdi allt“ Sorp: Fólk að hoppa niður plastið í tunnunum til að þjappa því „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ „Hörðustu samningaviðræðurnar voru við yngsta fólkið Eitraður starfsmaður og góð ráð „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ B-týpa sem vill verða A en þarf tíma til að „morgna sig“ Fólki á helst að líða betur eftir vinnudaginn en þegar það mætti Slökkt á asanum: „Hljómar kannski auðveldlega en er það ekki“ Konurnar ofþreyttar en karlmenn vilja meiri frið til að vinna „Allir alltaf að segja að hann sé svo mjúkur“ „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Sjá meira
Stóra uppsögnin: Ljóst að atvinnulífið er meðvitað um gjörbreyttar áherslur Það er ljóst að forkólfar íslensks atvinnulífs eru meðvitaðir um gjörbreytt landslag á vinnumarkaði þar sem nýjar kynslóðir X og Z eru að koma inn með ný viðhorf og heimsfaraldur hefur flýtt fyrir þróun fjarvinnu í takt við kröfur fólks um aukinn sveigjanleika í starfi. 18. maí 2022 07:00
Stóra uppsögnin: Fólk þarf að langa að vera í vinnunni Á Viðskiptaþinginu 2022 sem haldið er á Alþjóðlega mannauðsdeginum föstudaginn 20.maí næstkomandi, er sjónunum beint að mannauðsmálum. Enda telja ríflega 40% stjórnenda í 400 stærstu fyrirtækjum á Íslandi að skortur verði á vinnuafli á næstunni. 16. maí 2022 07:00
Starfsfólki tryggt aðgengi að sálfræðingum með lágmarksbiðtíma Það á að vera gaman í vinnunni, sveigjanleikinn á að vera mikill, jafnrétti, fjölbreytileiki og síðast en ekki síst góð andleg heilsa. 20. júní 2022 07:01
„Þá segir Jói: Veistu, þetta er mesta snilld sem ég hef heyrt!“ „Ég man þegar að við tókum við rekstri Rush Trampólín garðsins að þá var eitt það fyrsta sem starfsfólkið spurði okkur „Þýðir það þá að við fáum Pétur Jóhann til okkar líka?““ segir Jóhannes Ásbjörnsson einn eigenda Gleðipinna um hversu vel starf Péturs Jóhanns Sigfússonar í hlutverki Móralska er að mælast hjá starfsfólki. 16. september 2022 07:01
Bjóða starfsfólki svefnráðgjöf og skoða hagræðingar á vinnutíma Svefnráðgjöf, námskeið og fleira er liður í innleiðingu Samkaupa á svefnstjórnun til að auka á vellíðan starfsfólks. 5. maí 2022 07:01