Lífið

Jóhannes Haukur fékk senda klippu af sér á klámsíðu

Elísabet Hanna skrifar
Jóhannes Haukur Jóhannesson upplifði blendnar tilfinningar við að sjá klippuna.
Jóhannes Haukur Jóhannesson upplifði blendnar tilfinningar við að sjá klippuna. Vísir/Vilhelm

Leikarinn Jóhannes Haukur rifjar upp þegar klippa af honum í kynferðislegri athöfn, úr myndinni Svartur á leik, rataði inn á þýska klámsíðu. 

„Það litla myndbrot rataði inn á einhverja þýska hommaklámsíðu. Einn félagi minn sem hneigist í þá áttina varð var við þetta þegar hann var á sínu surfi um netið að leita sér að efni,“ sagði Jóhannes Haukur. Aðspurður hvernig tilfinningin hafði verið sagði hann „Mér fannst svona brotið á mér en ég var líka svona flattered sko.

Hann sendi mér linkinn bara, þú ert hérna á þýskri síðu sem að ég kíki reglulega á,“ segir hann um uppgötvunina.

Klippa: Veislan með Gústa B - Jóhannes Haukur á þýskri klámsíðu

Tíu stólar á viku brotnir á bakinu á Maríu Birtu

Leikkonan María Birta hefur búið erlendis í tíu ár og býr núna í borginni Las Vegas. Þar hefur hún tekið þátt í leiksýningu í þrjú ár. Í hverri sýningu er brotinn stóll á bakinu á henni. „Það eru tíu stólar á viku og það tekur sinn toll líka.“ Hún rifjar upp hvernig hún hefur tvisvar dottið úr lið. 

Um helgina fagnar hún þúsundustu sýningunni og hafa því þúsund stólar verið brotnir á bakinu á henni, fyrir utan þá sem voru notaðir á æfingum. 

Hér er þátturinn í heild sinni:


Tengdar fréttir

„Þetta er svo kolrangt í dag“

Ég var „viðbjóðslegasta sjónvarpsefni sem hefur verið framleitt,“ sagði leikarinn Guðjón Davíð Karlsson þegar hann kom í hitasætið hjá Gústa B á FM957.

Hefði fyrirgefið Ásdísi Rán að sofa hjá Bruce Willis

Árið 2010 var Ásdís Rán á forsíðu Playboy í Búlgaríu og segist hún hafa lent í ótrúlegum hlutum í kjölfarið eins og þegar frægir Hollywood leikarar voru að reyna við hana og að vera boðið í partý í Playboy Mansioninu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.