Samstarf

Heimilistæki og Tölvulistinn 90 ára!

Heimilistæki

Um helgina fagna Heimilistæki og Tölvulistinn, 60 og 30 ára afmæli eða samtals 90 árum.

Í tilefni þessa mikla áfanga ætla Heimilistæki og Tölvulistinn að efna til glæsilegra tilboðsdaga 3. – 7. nóvember og bjóða sérstaklega til afmælisveislu laugardaginn 5. nóvember þar sem verða kræsingar úr heimabyggð í boði í öllum verslunum, heitt á könnunni og fjölmörg vegleg tilboð.

Þjóðviljinn árið 1962

Sem dæmi um tilboð helgarinnar má nefna Predator Orion borðtölvu með 90.000 króna afslætti, Nitro 5 leikjafartölvur með allt að 100.000 króna afslætti, 77“ LG OLED sjónvarp með 100.000 króna afslætti, iRobot Roombu ryksuguvélmenni á 43% afslætti og margt, margt fleira.

Heimilistæki var stofnað árið 1962 og hefur lengi verið leiðandi í innflutningi og sölu raf- og heimilistækja. Árið 2007, eftir mörg ár í Sætúninu, flutti verslunin í mun stærra húsnæði á Suðurlandsbraut 26 og deilir því með Tölvulistanum sem er á 2. hæð.

Verslanir Heimilistækja og Tölvulistans eru saman á öllum sínum fimm staðsetningum en auk Reykjavíkur eru verslanir þeirra staðsettar á Selfossi, Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjanesbæ.

Það verður nóg um að vera og aldeilis tilefni til að gera sér ferð í verslanir Heimilistækja og Tölvulistans um helgina.

Auglýsing frá árinu 2002

Á Suðurlandsbraut verður sett upp glæsileg 2,5 metra há risaþvottavél úr blöðrum sem gestir og gangandi geta skoðað og tekið mynd af sér við til þess að taka þátt í glæsilegum afmælisleik þar sem verða 6 vinningar í boði fyrir samtals 500.000 krónur. 

Afmælisleikurinn mun bæði fara fram á samfélagsmiðlum og í verslun svo öllum verði frjálst að taka þátt eins og þeim hentar og eiga jafnan möguleika á að vinna. Meðal vinninga verða meðal annars borðtölva, sjónvarp og ryksuguvélmenni svo það er ærið tilefni til þess að taka þátt.

Auglýsing sem birtist í Þjóðlífi 1989

Svo má nefna að á Glerártorgi verður sérstaklega mikið um að vera en Glerártorg fagnar einnig afmæli þessa helgi með skemmtilegri dagskrá 3. – 6. nóvember. Heimilistæki og Tölvulistinn fluttu af Glerárgötunni yfir á Glerártorg haustið 2016 og fagna því 6 ára viðveruafmæli þar í ár.

Öll tilboðin og frekari upplýsingar um afmælisleikinn má finna á heimasíðum Heimilistækja ht.is og Tölvulistans tl.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×